Deila á Facebook
« ELDUR !!! | Aðalsíða | Smá ljóð »

Helgin - Lúdó og Stefán
Skrifað mánud. 10. nóvember 2008 - 11:13
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, þá er enn ein vinnuhelgin búin. Rosalega þægilegt á sunnudögum að slappa af og vitandi til þess að maður eigi frí næstu helgi.

Það var bara ágætt í vinnunni. Lúdó og Stefán komu og spiluðu og héldu í leið upp á 50 ára afmælið sitt. Það var sko brjálað að gera!

Svo tekur bara enn önnur vikan við í skólanum þar sem maður nær ekki að anda vegna anna. Ein stór skýrsla sem ég þarf að klára og svo einhver 15 mínútna kynning um Japan í næstu viku. Svona er þetta á síðustu metrunum í skólanum.

En áður en skólinn byrjaði ætlaði ég að vera rosalega duglegur að koma mér í form. Það hefur ekki alveg gengið eftir, en maður varð bara kærulaus.

Á næsta föstudag er Elliðarárdalsganga. Ég ætla að mæta í hana og fæ í staðinn 5 íþróttamætingar fyrir. Það þýðir að ég þarf að mæta 8x það sem af er mánuðinum.

Svo er spurning hvenær ég drullast til að setja vetrardekkin undir. Svo vil ég að það fari að snjóa aftur, því þá ætla ég á snjóbretti.

Segjum þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():