Deila á Facebook
« Smá ljóð | Aðalsíða | Vetrardekk »

Alþingi
Skrifað miðvikud. 12. nóvember 2008 - 00:37
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Í dag fór ég með Stjórnmálabekknum mínum í heimsókn niður í Alþingi. Það var afar forvitnilegt og skemmtileg upplifun.

Starfsmaður skrifstofu Alþingis tók á móti okkur og kynnti okkur aðeins fyrir vefsíðu Alþingis, þar sem finna ýmsar gagnlegar upplýsingar, þ.á.m. helstu málefni á dagskrá. Einnig má sjá niðurstöðu í málum, samþykkt frumvörp, o.s.frv.

Kolbrún Halldórsdóttir, 5. þingmaður Vinstri Grænna í Reykjavíkurkjördæmi suður, kom svo og svaraði spurningum okkar, en þær beindust aðallega að efnahagskreppunni ásamt stefnu Vinstri Grænna um aðild að Evrópusambandinu.

Ég ætlaði að koma einni spurningu að þegar hún sagði að tíminn væri runninn út, en það varðaði það hvort Vinstri Grænir ætluðu að endurskoða stefnu sína gagnvart ESB ef til kæmi ríkisstjóraklofningur.

Eftir að hún hafði svarað mörgum spurningum okkar fórum við á áhorfendapallinn, þar sem við sáum Alþingi í beinni. Ég hef aldrei séð þetta og því var mjög forvitnilegt að sjá þetta svona í persónu.

Þegar við komum inn á pallinn kom mér á óvart hversu fáir þingmenn voru í salnum. En sú sem var í ræðustól var Álfheiður Ingadóttir, 11. þingmaður Vinstri Grænna í Reykjavíkurkjördæmi suður, og var hún að fjalla um fjármálafyrirtækin. Eftir það kom Árni Páll Árnason, 11. þingmaður Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi, með andsvar. Þannig gekk þetta nokkrum sinnum á milli þeirra, einn talaði og hinn kom með andsvar.

Ég hef ekki hugmynd um hvernig Alþingi virkar, fyrir utan almenna vitneskju, en þetta var mun óformlegra en ég hélt að þetta væri. Að vísu er forseti Alþingis þarna og sér um að þingmaðurinn haldi sig við efnið og sé innan ákveðinna tímamarka, en þetta var bara hálfgert rifrildi. Auk þess heyrði maður oft Samfylkingarmenn grípa inn í og hrópa að þingmanninum hjá Vinstri Grænum á meðan hún var að tala í ræðustól.

Þetta leit út fyrir að vera eins konar ræðukeppni þar sem fólk talaði og kom með andsvör þangað til aðrir gátu ekki svarað á móti. Þetta var satt að segja svolítið öðruvísi en ég hafði búist við. En engu að síður mjög skemmtileg upplifun og gaman að geta sagt að maður hafi séð þetta með eigin augum.




Athugasemdir ():