Gott í kroppinn partý
Skrifað þriðjud. 25. nóvember 2008 - 02:45Um helgina fór ég í Gott í kroppinn partýið sem haldið var á Hverfisbarnum á vegum strákanna í utandeildarliðinu Vatnaliljurnar. Ég skemmti mér bara ágætlega og tók m.a.s. nokkrar myndir. Hins vegar fannst mér hálf ömurlegt að hafa mætt edrú niður í bæ og farið hálf edrú af Hverfis.
Eftir partýið á Hverfis var ferðinni heitið á nýja staðinn, Club 101, en við ákváðum fyrst að "hlýja okkur" aðeins á Sólon og fá okkur einn drykk, þar sem það var of langt og of kalt að labba alla leið frá Hverfis niður að Club 101.
Einn drykkur varð að tveimur, tveir urðu að þremur, o.s.frv. Svo loksins létum við verða af því og fórum á þennan stað. Ég labbaði með Rakel inn, en ég var spurður um skilríki - ekki hún.
Þegar við komum inn ákvað ég að skoða staðinn aðeins. Mér leist bara mjög vel á hann. Virkilega flottur í alla staði, sérstaklega hvernig DJ búrið var og tjaldið fyrir utan. Gerði aðkomuna mjög flotta. Allt annað en hreysið sem þetta var þegar Organ var þarna.
Það var samt eitt sem skemmdi rosalega fyrir. Ég fór á barinn og bað um einfaldan vodka í Burn, en barþjónninn byrjaði að hella Cult. Ég spurði hann þá hvort hann ætti ekki Burn, en þá sagði hann bara "ONLY CULT".
Ég þoli ekki svona djöfulsins dóna amatör barþjóna sem hella einhverju öðru en því sem maður biður um, eins og um daginn á English Pub.
Ég varð frekar pirraður út af þessu en ákvað bara að sætta mig við þetta. Ég rétti barþjóninum kortið mitt og fékk það svo stuttu síðar til baka ásamt afritinu. Ég leit á það og las 1500. Það er rétt, ég borgaði 1500 kr. fyrir einfaldan vodka íhland Cult.
Ég missti af opnunarpartýinu á föstudeginum en þegar ég kom þarna á laugardeginum bjóst ég við því að allt yrði geðveikt ódýrt, þar sem staðurinn var jú nýopnaður. En svo lendir maður í þessu.
En burt séð frá þessu var þessu 22 ára stefna þeirra alveg í ruglinu. Ég sá eiginlega bara krakka þarna sem voru ekki einu sinni komnir með áfengiskaupaaldur.
Ég gerði mér svo ferð niður á klósettið til að pissa en þegar ég var búinn að því þá þvoði ég mér um hendurnar og ætlaði svo að þurrka hendurnar í handþurrkunni, en þá var hún biluð. Svo var enginn pappír neinstaðar, þannig ég neyddist til að þurrka mér í buxurnar mínar.
Það má því segja að ég hafi orðið fyrir svolitlum vonbrigðum, þar sem ég var búinn að hlakka svolítið mikið til þess að kíkja þangað eftir að partýið á Hverfis væri búið.
Eftir þetta var ferðinni heitið á Nasa, þar sem Skímó var að spila. Ég skemmti mér bara ágætlega þar nema það var alveg fáránlegt að einhver gestur kom og tók einhver lög sem ég man síðan í leikskóla, þ.á.m. Tannpínupúkann. Ég saknaði satt að segja Einars Ágústs.
En eftir þetta fórum við aftur á Sólon og vorum bara þar til lokunar. Svo röltum við Grétar niður laugarveginn eftir lokun á Sólon og þegar við vorum búnir að kveðja Rakel, en þá var búið að loka öllu öðru.
Ég lenti í þvílíku rifrildi við dyraverðina á Amsterdam þar sem ég tímdi ekki að borga mig inn þegar það var korter í lokun. En þeir gáfu sig ekki og ég gaf mig ekki heldur. Þannig það endaði bara með því að Grétar borgaði sig inn og ég fór út.
Ég fór aðeins inn á Glaumbar en það var búið að loka, en ég náði þó að kaupa mér einn drykk á barnum. Svo þambaði ég hann bara og fór út aftur og reyndi að komast inn á Amsterdam aftur, en í þetta skiptið sagðist ég ætla að borga mig inn, en gaurinn lokaði á mig og sagði að það væri búið að loka.
Ég fór þá á skyndibitastaðinn Habibi, sem er við hliðina á Pizza King. Ég pantaði mér bara tilboð nr. 1 og fékk það stuttu seinna. Það var þá ískalt og leit allt öðruvísi út heldur en á myndinni. Ég sagði það við gaurinn og hann sagði bara: "Þú ekki panta númer einn". Ég þrætti smá við hann þangað til hann tók matinn minn og lét mig í staðinn fá tilboð nr. 1.
Ég þvílíkt sáttur og gat ekki beðið eftir því að fara að borða, komst að því að maturinn væri ískaldur. Ég spurði einhvern útlending við hliðina á mér hvort þetta ætti að vera kalt og svaraði hann neitandi, þannig ég fór aftur og talaði við afgreiðslumanninn, og þá henti hann þessu í örbylgjuna fyrir mig.
Ég borðaði þetta með bestu lyst en þetta var nú ekki mikill matur. Ég var ennþá sársvangur eftir að hafa klárað þetta og skellti mér með Grétari á Hlöllavagninn þar sem ég fékk mér bát í eftirrétt. Alveg glatað að borga 1100 kr. á þessum Habibi stað og vera svo ennþá geðveikt svangur eftir máltíðina.
Svo skutlaði systir mín okkur Grétari bara heim. Ég var orðinn hálf edrú á þessum tímapunkti, þannig ég vaknaði bara helvíti hress á sunnudeginum og ekkert þunnur. Bara gott!
Segjum þetta ágætt í bili. Myndirnar frá kvöldinu eru hér.
Eftir partýið á Hverfis var ferðinni heitið á nýja staðinn, Club 101, en við ákváðum fyrst að "hlýja okkur" aðeins á Sólon og fá okkur einn drykk, þar sem það var of langt og of kalt að labba alla leið frá Hverfis niður að Club 101.
Einn drykkur varð að tveimur, tveir urðu að þremur, o.s.frv. Svo loksins létum við verða af því og fórum á þennan stað. Ég labbaði með Rakel inn, en ég var spurður um skilríki - ekki hún.
Þegar við komum inn ákvað ég að skoða staðinn aðeins. Mér leist bara mjög vel á hann. Virkilega flottur í alla staði, sérstaklega hvernig DJ búrið var og tjaldið fyrir utan. Gerði aðkomuna mjög flotta. Allt annað en hreysið sem þetta var þegar Organ var þarna.
Það var samt eitt sem skemmdi rosalega fyrir. Ég fór á barinn og bað um einfaldan vodka í Burn, en barþjónninn byrjaði að hella Cult. Ég spurði hann þá hvort hann ætti ekki Burn, en þá sagði hann bara "ONLY CULT".
Ég þoli ekki svona djöfulsins dóna amatör barþjóna sem hella einhverju öðru en því sem maður biður um, eins og um daginn á English Pub.
Ég varð frekar pirraður út af þessu en ákvað bara að sætta mig við þetta. Ég rétti barþjóninum kortið mitt og fékk það svo stuttu síðar til baka ásamt afritinu. Ég leit á það og las 1500. Það er rétt, ég borgaði 1500 kr. fyrir einfaldan vodka í

Athugasemdir (