Er ég ekki á listanum?
Skrifað miðvikud. 26. nóvember 2008 - 20:41Ég fór í Stjórnmálafræði áðan þar sem við héldum Litlu Jól. Sátum bara í hring, borðuðum piparkökur, drukkum gos og töluðum saman um önnina. Ég hef ekki upplifað Litlu Jól síðan ég var í grunnskóla. Þetta var bara mjög gaman.
Seinna í tímanum las kennarinn upp þá sem höfðu náð símati og þurfa ekki að mæta í lokapróf í desember. Hún las upp einhver nöfn og sagði einkunnina þeirra, en ég heyrði mitt nafn ekki lesið upp.
Ég ákvað þá að ganni að athuga hvaða einkunn ég fékk og renndi augunum yfir listann sem hún hélt á. Ég fann mig og einkunnina mína og hún var 7. Þannig eftir að hún var búin að lesa upp þá sem höfðu náð símatinu, benti ég á einkunnina mína á listanum og sagði: "Takk!".
Þá hófst einhver umræða um hver einkunnin þurfti að vera til þess að ná símatinu. Kennarann minnti að það væri 7,5 en nemendurnir, þ.á.m. ég, minntu hana á að það væri 7.
Eftir þetta gékk ég yfir mig ánægður úr tímanum sönglandi.

Athugasemdir (