Niðurstaða úr lokaprófum
Skrifað mánud. 19. desember 2005 - 22:44Jæja, ég náði í einkunnirnar í dag og svo fór ég að vinna. Alveg hvað þetta er einhæft líf akkúrat núna. Vinna, sofa, vinna, sofa, vinna, sofa... Svona gengur það bara þessa dagana.
Ég vaknaði í morgun við hringingu frá yfirmanni mínum hjá Securitas og var hann að tilkynna mér það að ég þyrfti ekki að mæta kl 12 heldur 2, þar sem Bónus var að breyta opnunartímanum og eitthvað. Ég man eiginlega ekkert hvað hann sagði við mig út af því að ég var hálf sofandi.
Ég fór á fætur kl 1 og sótti einkunnirnar upp í skóla, fór svo í sturtu og gerði mig kláran fyrir vinnuna. Niðurstaða einkannana er bara skítsæmileg en þó ekkert meira en það. Ég féll í 3 fögum; íþróttum (1 eining), landafræði (3 einingar) og íslensku (2 einingar). Ég náði sem sagt 14 einingum af 20. Þegar ég sýndi mömmu og pabba einkunnaspjaldið tjúllaðist mamma auðvitað og pabbi hélt áralanga ræðu fyrir mér. Já já, ég er auli og allt það. Ég veit það alveg sjálfur. Þó ég sé búinn að skíta upp á bak, þurfa þau ekki að maka skítnum mínum út um allt.
Málið er nefnilega það að ég stóð mig mjög illa í flest öllum áföngunum yfir önnina. Maður uppsker víst bara eins og maður sáir. Ég sé það núna. Fékk sem sagt í flestum fögum mjög lélega kennaraeinkunn (skyndipróf, heimavinna ofl.) en fékk oft mjög góðar einkunnir í lokaprófunum. Mamma er svo einföld að hún heldur að þetta séu bara einkunnirnar mínar í lokaprófunum þannig ég nenni ekki að vera að rökræða við hana meira. Pabbi gerði sér á endanum grein fyrir því að það væri tekið meðaltal af kennaraeinkunn og lokaeinkunn og út úr því komu einkunninirnar sem voru á blaðinu mínu. Asnalegt að það sé ekki birt allar einkunnirnar.
Allavega, ég nenni ekki að fjalla meira um velgengni mína í skólanum. Ég er hálf sáttur. Það var alveg vitað mál að ég myndi ekki ná þessum áföngum, þó ég hafi reynt að bæta upp fyrir það með því að læra eins og mongó fyrir lokaprófin, sem var bara orðið of seint. Ég náði þó öllu hinu; ensku, félagsfræði, kór, stærðfræði og þýsku. Nokkuð nett bara.
Ég er mjög feginn að ég hafi ekki fallið í ensku þar sem ég var búinn að lofa vinum mínum að ég myndi krúnuraka mig ef ég myndi falla í ensku. Sem ég, sem betur fer, gerði ekki.
Ég komst að því áðan að vegabréfið mitt væri útrunnið árið 2002! Það tekur víst 10 daga að fá nýtt vegabréf og ég er að fara út eftir 2 daga, þannig það er aðeins of langur tími. Ég frétti samt að það væri hægt að fá vegabréf á styttri tíma í neyð í Keflavík eða eitthvað. Ég er eiginlega ekki að nenna því en ætli maður verði ekki að gera það til þess að komast í þessa yndislegu snjóbrettaferð til Ítalíu.
Segjum það bara í bili. Ég held áfram að rugla í ykkur seinna.

Athugasemdir (