Afmælishelgin
Skrifað fimmtud. 18. desember 2008 - 03:51Þetta var satt að segja eitt ömurlegasta afmæli sem ég hef átt. Án efa hápunktur dagsins voru allar kveðjurnar sem ég fékk, bæði í tölvupósti, á msn, í sms, á Live2Cruize og á Facebook. Bara gaman, gerir daginn spennandi og æðislegan.
Ég byrjaði kvöldið á því að fara á Frostrósir. Það var bara mjög gaman og kom manni í smá jólaskap.
Eini gallinn var sá að við sátum efst uppi í stúkunni alveg lengst frá sviðinu og nutum því ekki tónleikanna eins vel og þeir sem sátu fyrir framan sviðið. Þeir hefðu nú alveg mátt hugsa aðeins um fólkið í stúkunni.
Einnig var rosalega heitt og þungt loft þarna, þannig maður fór fljótt úr jakkanum og bretti upp ermarnar á skyrtunni.
En burt séð frá þessu öllu voru þetta frábærir tónleikar og fá alveg toppeinkunn.
Eftir tónleikana fór ég á bjórkvöld bílaklúbbsins Live2Cruize sem haldið var á Players. Það var bara gaman að hitta allt fólkið sem maður spjallar við nánast daglega.
Eftir svolitla dvöl og drykkju á Players var bara ákveðið að skella sér í bæinn, en vinur Karlottu var svo góður að skutla okkur niður í bæ.
Þegar ég kom niður í bæ á Sólon fékk ég allt í einu rosalegan hausverk, þannig ég sast bara niður. Fékk einhverjar 3 Paratabs töflur hjá stelpu á barnum og lagaðist verkurinn smávegis.
Eftir að hafa verið að drekka áfengi og tekið verkjalyf ofan í það leið mér skringilega og fór að fá einhvern verk í magann þannig ég tók því bara rólega.
Ég varð aðeins betri og skellti mér á dansgólfið og dansaði við allt liðið. Svo seinna um kvöldið var ég kýldur í magann af ákveðnum aðila þannig ég ákvað bara að taka því rólega það sem eftir var. Ég missti alla löngun í áfengi og eftir það lét ég bara renna af mér.
Kvöldið var nú ekkert skemmtilegra en þetta, en eftir djammið skelltum við Rakel okkur á Habibi og fengum okkur að borða.
Á sunnudaginn fór ég með Sollu að borða á Kránni og smá rúnt, þar sem það var allt of langt síðan ég hitti hana og hún lét mig lofa sér því að hitta sig um helgina. Solla gaf mér afmælisgjöf en það voru nærbuxur og "Herra Æðislegur" bókin. Takk fyrir það!
Eftir það fór ég til Karlottu og hún gaf mér afmælisgjöf sem var hálsmen með Bogmanninum á. Geðveikt flott. Þúsund þakkir fyrir það! Geðveikt ánægður með það.
Eftir það skoðuðum við bara myndir, horfðum á atriði úr Mamma Mia sem ég er núna með á heilanum og hlustuðum á eitt lag með Frostrósum frá 2006.
Upp á síðkastið hefur mér verið illt í enninu, þannig ég ákvað í dag að fara til læknis og láta greina mig. Þetta er jú einhver ennisholubólga þannig ég er kominn aftur á penisillín. Mér finnst ég alltaf vera á þessu.
Annars er ekkert annað að frétta en það að desembermánuðurinn er afar rólegur hjá mér, sef bara út og vinn heiman frá mér og aðra hverja helgi á Kránni.
Segjum þetta ágætt í bili.

Athugasemdir (