Jólaóskalisti 2008
Skrifað mánud. 22. desember 2008 - 03:10Ég ætla héðan í frá árlega að setja inn óskalistann minn hingað, svona fyrir þá sem eru forvitnir og vantar eitthvað til að gefa mér í jólagjöf. Athugið, þessi listi er ekki tæmandi.
Þá er það bara komið held ég. Svo tek ég auðvitað fagnandi á móti öllu, hvað sem það er. En þetta er bara svona til að gefa ykkur einhverja hugmynd um hvert áhugi minn leitar.
- Föt
Helst frá Levi's; Buxur, boli, peysur, o.s.frv. Mig vantar líka nýjan leðurjakka, þessi sem ég á er orðinn lúinn.

- Radarvari
Valentine One, það heitasta og öruggasta á markaðnum í dag. Maður er aldrei of öruggur.
- Xenon 8000K
Þið hafið séð svona bláleit framljós á bílum, ég er einmitt að tala um svoleiðis!
- Tölvudót
Mig vantar alltaf meira og meira dót í tölvuna, þannig það sem um ræðir er flakkari, stærri harðir diskar, nýtt skjákort, meira innraminni, o.s.frv.
- Sjónvarpsflakkari
Einhver sjónvarpsflakkari svo ég þurfi ekki alltaf að tengja ferðatölvuna við sjónvarpið.
- Græjur í bílinn
Bassabox og magnara í bílinn.
- Myndavél
Canon digital SLR vél, þar sem ég hef mikinn áhuga á ljósmyndun.
Þá er það bara komið held ég. Svo tek ég auðvitað fagnandi á móti öllu, hvað sem það er. En þetta er bara svona til að gefa ykkur einhverja hugmynd um hvert áhugi minn leitar.
Athugasemdir (

