Jólin & Klaas
Skrifað mánud. 29. desember 2008 - 05:06Jæja, nú eru Jólin yfirstaðin og fer þá senn að koma að áramótum. Ég hafði það bara mjög gott og fékk margt og mikið í Jólagjöf. Ég vil hálf partinn tileinka þetta blogg Valda (þú veist hver þú ert).
Það sem ég fékk var m.a...
Þetta eru allt frábærar gjafir og vil ég bara þakka kærlega fyrir mig! Það er sérstaklega gaman að fá persónulegar gjafir eins og myndaalbúmið sem Solla gaf mér.
Ég fór á Klaas & Micha Moor á laugardaginn á Broadway en við hituðum upp heima hjá Jökli. Ég, Rakel, Gummi, Hjalti og Rafn vorum búnir að ákveða löngu áður að við ætluðum að fara. Að lokum gáfu Grétar og Jökull sig og komu með okkur.
Það var smá þema hjá okkur strákunum og var það þannig að við ætluðum að vera allir í öllu hvítu, svona í anda Sensation White. Ég fór því í hvítar buxur og hvíta skyrtu, en meikaði ekki bara einn lit og fór því í svart vesti.
Þetta var fáránlega skemmtilegt kvöld og dönsuðum við Rakel þangað til Broadway lokaði. Strákarnir fóru yfir á Sólon eftir að Klaas var búinn að spila í klukkutíma. Algjörar kellingar.

Eftir að Broadway lokaði tókum við Rakel leigubíl niður í bæ, fengum okkur Habibi og hittum Grétar, Gumma og Hjalta.
Gummi fór seinna heim en Hjalti bauð mér og Grétari í tölvuleikjaspil niðri í vinnunni sinni, sem við létum okkur að sjálfsögðu ekki vanta í. Djöfull var það gaman!
Eftir að ég klúðraði síðasta borðinu í Left 4 Dead (tölvuleikurinn sem við spiluðum) ákváðum við að láta gott heita og fara bara heim, enda var klukkan orðin 9.
Þannig við röltum í leigubílaröðina og fundum þar tvo taxa. Hjalti tók einn sér og við Grétar einn, þar sem Hjalti á heima í Hafnarfirði.
Við Grétar lentum á fyndnasta, skrítnasta, ógeðslegasta og hættulegasta leigubílstjóra sem við höfum á ævinni lent í. Þetta var gamall perralegur karl.
Þegar við settumst inn var hann með ferða-DVD-spilara í framsætinu og var með kveikt á Thailensku klámi. Svo þegar bíllinn var farinn af stað byrjaði rosa atriði í myndinni og leigubílstjórinn sagði: "Það er bara allt á fullu" og við Grétar sprungum næstum því úr hlátri.
Svo á leiðinni röflaði hann eitthvað og var hann alltaf að horfa sjálfur á myndina, var ekki með einbeitinguna við stýrið og því vorum við skíthræddir á leiðinni heim, þar sem hann keyrði eins og hann væri dauðadrukkinn.
En þegar við vorum komnir hálfa leiðina heim slökkti hann á DVD spilaranum og einbeitti sér að akstrinum. En þetta var án efa svona "had-to-be-there", þar sem eftir að við Grétar vorum komnir út úr leigubílnum dóum við úr hlátri. Þessi bílstjóri minnti mig svo á "Leigubílstjóra Dauðans" sketchinn í Fóstbræðrum, þar sem kallinn var álíka ruglaður og hættulegur.
En Klaas, Hjalti og bílferðin heim sköpuðu þetta dýrlega kvöld sem ég á án efa seint eftir að gleyma! Takk fyrir mig allir!
Það sem ég fékk var m.a...
- Sjónvarpsflakkara (HDMI 1080p)
- Núðluskál
- Myndaalbúm
- Snyrtidót
- Hvítvínsglös
- Levi's bol
- Skyrtu
- 50.000 kr. í peningum
Þetta eru allt frábærar gjafir og vil ég bara þakka kærlega fyrir mig! Það er sérstaklega gaman að fá persónulegar gjafir eins og myndaalbúmið sem Solla gaf mér.
Ég fór á Klaas & Micha Moor á laugardaginn á Broadway en við hituðum upp heima hjá Jökli. Ég, Rakel, Gummi, Hjalti og Rafn vorum búnir að ákveða löngu áður að við ætluðum að fara. Að lokum gáfu Grétar og Jökull sig og komu með okkur.
Það var smá þema hjá okkur strákunum og var það þannig að við ætluðum að vera allir í öllu hvítu, svona í anda Sensation White. Ég fór því í hvítar buxur og hvíta skyrtu, en meikaði ekki bara einn lit og fór því í svart vesti.
Þetta var fáránlega skemmtilegt kvöld og dönsuðum við Rakel þangað til Broadway lokaði. Strákarnir fóru yfir á Sólon eftir að Klaas var búinn að spila í klukkutíma. Algjörar kellingar.

Ég og félagar mínir í Live2Cruize að dansa við ljúfa tóna Klaas
Eftir að Broadway lokaði tókum við Rakel leigubíl niður í bæ, fengum okkur Habibi og hittum Grétar, Gumma og Hjalta.
Gummi fór seinna heim en Hjalti bauð mér og Grétari í tölvuleikjaspil niðri í vinnunni sinni, sem við létum okkur að sjálfsögðu ekki vanta í. Djöfull var það gaman!
Eftir að ég klúðraði síðasta borðinu í Left 4 Dead (tölvuleikurinn sem við spiluðum) ákváðum við að láta gott heita og fara bara heim, enda var klukkan orðin 9.
Þannig við röltum í leigubílaröðina og fundum þar tvo taxa. Hjalti tók einn sér og við Grétar einn, þar sem Hjalti á heima í Hafnarfirði.
Við Grétar lentum á fyndnasta, skrítnasta, ógeðslegasta og hættulegasta leigubílstjóra sem við höfum á ævinni lent í. Þetta var gamall perralegur karl.
Þegar við settumst inn var hann með ferða-DVD-spilara í framsætinu og var með kveikt á Thailensku klámi. Svo þegar bíllinn var farinn af stað byrjaði rosa atriði í myndinni og leigubílstjórinn sagði: "Það er bara allt á fullu" og við Grétar sprungum næstum því úr hlátri.
Svo á leiðinni röflaði hann eitthvað og var hann alltaf að horfa sjálfur á myndina, var ekki með einbeitinguna við stýrið og því vorum við skíthræddir á leiðinni heim, þar sem hann keyrði eins og hann væri dauðadrukkinn.
En þegar við vorum komnir hálfa leiðina heim slökkti hann á DVD spilaranum og einbeitti sér að akstrinum. En þetta var án efa svona "had-to-be-there", þar sem eftir að við Grétar vorum komnir út úr leigubílnum dóum við úr hlátri. Þessi bílstjóri minnti mig svo á "Leigubílstjóra Dauðans" sketchinn í Fóstbræðrum, þar sem kallinn var álíka ruglaður og hættulegur.
En Klaas, Hjalti og bílferðin heim sköpuðu þetta dýrlega kvöld sem ég á án efa seint eftir að gleyma! Takk fyrir mig allir!
29. desember 2008 - 15:02
#1 - Ellen Jóns
#1 - Ellen Jóns
Jahá! ég veit ekki hvað ég myndi gera ef ég myndi lenda á svona leigubílsstjóra!
29. desember 2008 - 18:19
#2 - Rakel
#2 - Rakel
Takk fyrir FRÁBÆRT kvöld!!!
Gaur þegar Klaas var búinn að vera spila í klukkutíma vissir þú ekki einu sinni af því ...kelling!! 
Það var ekkert Klaas! Ég spurði að því. Micha Moor var að spila þá, eða einhver mix eftir hann og Klaas. Góðu lögin, sem allir þekkja, voru í enda kvöldsins. 
Vantar þig hjálp með BBcode?


4 athugasemdir skrifaðar -