Deila á Facebook
« Áramótabloggið á leiðinni | Aðalsíða | 10 »

Áramótabloggið 2008-2009
Skrifað mánud. 5. janúar 2009 - 04:32
4 athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég er að fara að sækja stundatöfluna mína á eftir uppi í skóla en varð að henda inn smá bloggi áður en ég færi upp í rúm.

Ef við byrjum á Áramótaskaupinu að þá fannst mér það frekar lélegt, þó það hafi ekki verið næstum því jafn lélegt og skaupið í fyrra. Það sem mér fannst hins vegar mest pirrandi og leiðinlegt við skaupið, var klappið úr salnum.

Mér finnst hafa verið einblýnt of mikið á kreppuna í þessu skaupi, einmitt eitt af því fáa sem allir eru komnir með hundleið á. Þetta hefði mátt vera aðeins fjölbreyttara.

En það voru hins vegar nokkur góð atriði í skaupinu núna, sem mér fannst vert að hlæja að. Þau voru t.d...
  • Jón Gnarr sem Páll Óskar í Byr auglýsingunum
  • Jón Gnarr sem mótmælandinn
  • Facebook grínið

Það má því segja að mér hafi fundist Jón Gnarr eiga þetta skaup. Ég vil einmitt sjá meira af svona Fóstbræðrahúmor, þar sem ég hef einstaklega gaman að honum.



Fyrir skaupið var snætt rosalega bragðgóðan hátíðarfugl með einhverri sósu sem sló öll met. Við höfum vanið okkur á að hafa hátíðarfugl á gamlárs.

Eftir skaupið var bara farið utandyra og horft á alla sprengja raketturnar sínar. Afar hefðbundið, en svo þegar klukkuna sló 12 skáluðum við fjölskyldan í freyðivín. Afar hefðbundið líka.

Eftir það skelltum við strákarnir okkur á Broadway þar sem Sálin var að spila. Það var mjög fínt, fyrir utan það að það var 18 ára aldurstakmark þarna og fannst mér allt vera morandi í krökkum.

Sálin stóð samt fyrir sínu og allir voru ánægðir. Svo fyrir þá sem vildu hvíla sig á Sálinni gátu farið í norðursalinn þar sem Plugg'd var að spila. Það var sem sagt allt fyrir alla þarna.

Þegar það var liðið svolítið á kvöldið ákváðum við að fara yfir á Sólon. Ég var ekki nógu sáttur með það að ljóskastararnir og reykvélin voru ekki á sínum stað, en ég fór nú blindfullur til Freysa, eins af eigendum Sólon, og lét hann sko heyra það að ég dýrkaði þessa hluti.

Eftir smá stund á Sólon ákváðum við Gummi og Grétar að kíkja eitthvert annað, og varð Thorvaldsen fyrir valinu. Þar hittum við Palla og pabba hans, sem voru mjög hressir.

Við strákarnir skelltum okkur á dansgólfið og dönsuðum, en við fórum fljótlega eftir að einhver kolklikkuð kona réðist á mig. Við vorum nýbúnir að kaupa okkur drykki og vorum bara í góðum gír að dansa, en einhver kona kom þarna en var mjög svo illa við mig.

Ég varð svo reiður að ég tók í konuna og ætlaði að henda henni út. En Palli kom og róaði mig. Vá hvað þessi kona fór í taugarnar á mér!

Við þökkuðum svo bara Palla fyrir og fórum aftur yfir á Sólon, þar sem við vorum til lokunar. Við Grétar hittum Ella á Sólon og skelltum okkur svo með honum á Apótekið, þar sem við vorum til klukkan 9 um morgunn!

Ég hef aldrei þolað þennan stað, en maður tók nú bara því sem bauðst. En ástæðan af hverju ég þoli þennan stað ekki, er út af því að það er mjög svo snobbað lið þarna, ásamt því að dansgólfið var eitt smá pláss í horninu á staðnum, ásamt því að í flest öll skiptin sem ég fór þarna varð maður að fara reglulega út til að deyja ekki, þar sem það var svo þungt loft.

Þeir eru að vísu núna búnir að færa dansgólfið fyrir framan barinn og búnir að loka gamla dansplássinu. Spurning hvort þeir sameini þetta ekki bara og geri eitt risastórt dansgólf. Þá fyrst værum við að tala saman!

En í lokin þegar Apótekið var að loka, byrjuðu þeir að spila allskonar ömurlega rólega tónlist, en úr fjarska heyrðum við í geðveikri trance tónlist og gengum á hljóðið, og enduðum niðri á klósettinu og dönsuðum frá okkur allt vit. Það var fáránlega gaman!

Eftir að Apótekið lokaði röltum við bara út. Ölvun og þreyta voru farin að blandast saman þannig maður var ekki alveg hressasti gaurinn á svæðinu.

Það var ekkert opið til að borða, þannig við þurftum bara að sætta okkur við það, röltum í strætóskýli þarna og biðum eftir leigubíl. Það var enginn leigubíll þarna og því ákvað ég að prófa að hringja í pabba til að athuga hvort hann væri til í að sækja okkur. Hann var að sjálfsögðu til í það og skutlaði okkur öllum heim.

Ég var frekar fullur á þessu tímabili og hefði ég farið að sofa beint eftir, hefði ég án djóks ælt úr mér öllum líffærum daginn eftir. Ég ákvað því að vera mjög sniðugur og fékk mér heil tvö glös af mjólk. Þar sem þynnka er vökva- og bvítamínskortur að þá var þetta það sniðugasta sem ég hef gert í langan tíma. Ég hef oftast fengið mér vatn en samt orðið ógeðslega þunnur. Ég mæli með þessu!

En þetta varð til þess að ég var ekkert þunnur daginn eftir. Algjör snilld!



En eftir áramótin hef ég bara tekið því rólega. Ég var hins vegar að vinna um helgina og voru Sixties að spila. Það var bara mjög fínt.

Það var eitt rosalega fyndið sem gerðist um kvöldið. Ég var að þrífa eitthvað í vaskinum inni í uppvaski og Steinar, sem er að vinna með mér, var að eitthvað að tala við mig.

Ég ákvað aðeins að djóka í honum og tók vatnssprautuna og beindi að honum, en þar sem ég hélt yfir takkann á sprautunni, gusaðist hellingur af vatni framan í hann.

Hann varð gjörsamlega orðlaus, tók sprautuna af mér og sprautaði yfir mig á móti. Hahaha, djöfull var þetta fyndið, við vorum báðir rennblautir þarna og hlógum eins og fávitar.

En núna er málið að fara að sofa. Segjum þetta ágætt í bili.


5. janúar 2009 - 16:46
#1 - Svenni
hehe með sprautuna.. það er fyndnara að taka gossprautuna og sprauta kóki sem klístrast um allt

7. janúar 2009 - 15:35
#2 - Solla
http://www.myspace.com/kinder_girl
deam! það er ekkert smá blogg

7. janúar 2009 - 22:39
#3 - Rakel-lekaR
blogg stuði... mikið blogg...

meira af þessu!

svo gaman af þessu

14. janúar 2009 - 00:26
#4 - Ellen Jóns
Ég var á apó á áramótunum... og fór út kl 9 hvar var gaui sæti kall;) en já pizza king var opið til að borða! thihihihi




Vantar þig hjálp með BBcode?

Nafn:


Netfang:


Veffang:


Hvað er tólf plús einn?



Skilaboð: