Jólakærleikurinn - horfinn?
Skrifað mánud. 19. desember 2005 - 23:09Af hverju sé ég engan tilgang í jólunum? Þau hafa misst eiginlega alla merkingu hjá mér. Fyrst var þetta rólegur og yndislegur tími sem maður var með fjölskyldunni, hafði gaman, borðaði góðan mat og allt var æðislegt. En núna er þetta bara stress og leiðindi. Maður á engan helvítis pening. Ekki einu sinni til að kaupa jólagjafir og svo er maður að drepa sig með vinnu en fær ekki einu sinni útborgað fyrir jól svo maður geti keypt gjafir. Nei nei, þá fær maður bara útborgað eftir áramót. Hversu glatað er þetta?
Allir alltaf að flýta sér. Allir stressaðir, pirraðir og verða bara hálf þunglyndir út af þessu umstangi og stressi í kringum þessa "hátíð". Svo ég minnist nú ekki á það að "Jesú" fæddist ekki einu sinni 24. desember. Við lifum í einni stórri blekkingu en erum svo blind að við sjáum það ekki.
Fólk á bara að slaka á, taka því rólega og hafa það notalegt um jólin. Ekkert helvítis stress og vesen. Bara sitja á rassgatinu, hafa það notalegt með fjölskyldu sinni og heittelskuðum, og borða góðan mat!
Ég er kominn með ógeð af þessu öllu saman. Ég var í vinnunni í dag og var settur í Bónus. Ég sá ekki eitt helvítis bros á neinum kúnnum þarna! Bara pirringur, frekja og leiðindi í öllum þarna!
Hvað varð um gömlu jólin þar sem allt var yndislegt? Eða var það kannski bara þegar maður var krakki og sá ekki allt stressið og pirringinn í öllum út af því að maður var svo BLINDUR?!?!?!

Athugasemdir (