Týnda bloggið
Skrifað mánud. 19. janúar 2009 - 02:45Þið verðið að afsaka hvað ég er búinn að vera latur við að blogga, en ég er búinn að hafa nóg á minni könnu. Þó það sé ekki bloggvert að þá er ýmislegt annað búið að vera á seyði.
Þar síðustu helgi hélt ég smá hitting heima hjá mér, þar sem ég var einn heima. Rakel, Biggi, Helgi, Elli, Gulli, Jónas, Grétar og Jökull kíktu til mín, þar sem spilað var á gítarinn í takt við söng og áfengisdrykkju. Þvílíkt gaman og án efa eitt skemmtilegasta fyrirpartý sem ég hef upplifað LENGI!
Þetta átti nú bara til að byrja með að vera rólegt þar sem ég, Rakel og Biggi ætluðum að starta og fá okkur að drekka, en eitt leiddi af öðru og fólk fór að flæða, Helgi tók upp gítarinn og allir byrjuðu að syngja með. Þannig ég biðst afsökunar ef einhverjir fréttu ekki af þessu, þar sem ég bauð engum.
Eftir þetta rosalega fyrirpartý fórum við bara niður í bæ á Sólon, en kíktum svo seinna um kvöldið á Trevor Rockcliffe sem var að spila á NASA. Það var mjög fínt, fyrir utan það að 80% af liðinu þarna var undir lögaldri. Maður er hættur að nenna að fara á svona DJ'a, þar sem það eru bara krakkar á þessu.
En þetta var frábært kvöld í alla staði, en það verður seint toppað þetta fyrirpartý, þar sem þetta var stórkostlega gaman!
Núna um helgina var bara tekið vinnuhelgi á þetta. Hljómsveit að nafni Sólon var að troða upp og voru þeir bara mjög fínir. Það má eiginlega segja að þetta hafi bara verið helvíti vel lukkað ball.
En ég þarf að taka myndavélina meira á djammið og henda inn myndum hingað, þar sem það er orðið afar tómlegt af nýjum myndum í myndaalbúminu. Spurning líka um að fara að taka til í því.
Ég hef verið að hugleiða eitt í svolítinn tíma. Flestir vinir mínir eru komnir yfir í NOVA og segja að það sé alveg frábært, þar sem maður getur hringt frítt í NOVA vini sína, ásamt því að ef maður er með 3G getur maður farið á netið hvar sem er. Ég er svona eiginlega ákveðinn í að færa mig yfir. Ég ákvað samt að færa mig ekki yfir fyrr en ég myndi kaupa mér 3G síma og það ætla ég að gera fljótlega.
Ég var í kvöld að skoða Nokia 6600 Slide og er eiginlega alveg ákveðinn í að fá mér hann. Fáránlega flottur! Ég þarf sem sagt að borga 25.000 kr. fyrir hann og 2000 á mánuði í 12 mánuði. En aftur á móti er ég í rauninni bara að borga 25.000 kr. fyrir símann, þar sem mánaðarlega fæ ég 2000 kr. frítt í inneign, sem ég hefði hvort sem er keypt mér.

Nokia 6600 Slide
Athugasemdir (