Deila á Facebook
« Hálf bíómynd | Aðalsíða | Farinn vestur »

Google Apps
Skrifað fimmtud. 5. febrúar 2009 - 00:36
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Í dag færði ég tölvupóstinn minn yfir í Google Apps. Það þýðir sem sagt að Google sjái núna um að hýsa tölvupóstinn minn. Það er algjör snilld að Google bjóði upp á það fyrir þá sem eiga sitt eigið lén.

Ég er mjög ánægður með þessa breytingu, þar sem núna get ég skoðað póstinn minn hvar og hvenær sem er, ásamt því að geta stjórnað öllu hvað hann varðar og búið til eins mörg pósthólf og ég vill. Ég tengdi líka Google Calendar og Google Docs.

En ég var að koma áðan af þriggja klukkustunda fundi uppi í Ölduselsskóla, þar sem ég var að kenna stjórnendum skólans á vefstjórnunarkerfið Joomla. Ég er alveg gjörsamlega úrvinda. Áður en ég fór á fundinn var ég á Þjóðarbókhlöðunni að læra fyrir próf sem er á morgun.

Ég er farinn að sofa.




Athugasemdir ():