Deila á Facebook
« Farinn vestur | Aðalsíða | Póker auglýsing »

Reykjanes & Bláfjöll
Skrifað föstud. 13. febrúar 2009 - 18:53
6 athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Síðustu helgi fór ég í Reykjanesið að vinna. Ég fer satt að segja afar sjaldan þangað vegna leti, en það var ágætt í þetta skipti.

Á föstudeginum keyrði ég vestur með Jóa frænda og Kollu frænku. Ferðin tók engan tíma, þar sem ég svaf mest alla leiðina. Þegar við vorum komin slappaði ég bara af og fékk mér tvo bjóra. Það var ekkert að gera þannig ég þurfti ekkert að vinna. Svo fór maður bara snemma að sofa.

Næsta dag, laugardag, vaknaði ég með þvílíkan hausverk (þynnka?) þannig ég tók tvær hausverkjatöflur og fór aftur að sofa.Vaknaði svo aftur eitthvað í kringum 6 mun betri í hausnum, fór á fætur, fór í sturtu og klæddi mig í vinnufötin, sem voru jakkafatabuxur, hvít skyrta og svart vesti.

Ég fór niður í matsal og hjálpaði til við borðhaldið, sem var eintómur þorramatur. Satt að segja ekki minn uppáhalds matur, en þar sem þetta var nú þorrablót að þá varð maður að sætta sig við lyktina og ógeðið.

Eftir matinn fórum við Sigga hótelstjóri niður á Baldursbrá (skemmtistaðurinn) og opnuðum barinn.

Svo leið tíminn og ég var búinn að vinna kl 3 um nótt. Ég var þá sko ekki að fara að sofa, þannig ég fór á barinn rétt áður en Sigga skellti í lás og fékk mér einn rótsterkan drykk.

Eftir þetta fórum við upp á herbergi og héldum áfram með partýið, en stuttu síðar fóru allir að sofa, þannig ég var bara einn - og sko ekki á leiðinni að fara að sofa!

Ég labbaði þá aðeins um hótelið í leit að einhverju skemmtilegu og rakst þá á koníakstofu með einhverju fólki í.

Ég var á báðum áttum hvort ég ætti að kíkja, þar sem mér sýndist þetta vera einhver fjölskylda saman, en ákvað að gefa bara skít í þor og feimni og skellti mér inn, heilsaði upp á fólkið og settist.

Þetta var bara afar hresst fólk sem var komið saman þarna til að fagna 50 ára afmæli móður sinnar. Við spjölluðum, fengum okkur tequila, bjór og snakk.

Ég skellti mér aðeins á klósettið en svo þegar ég kom aftur voru allir farnir að sofa, nema ein stelpa. Við sátum þá bara tvö þarna heillengi til morguns, drukkum bjór og tequila og spjölluðum saman. Alveg þvílíkt gaman.

Svo þegar síga fór á drykkjuna komst einhvernveginn í tal að við hefðum bæði verið að æfa dans, þannig við gerðum okkur lítið fyrir og tókum tangó á miðju gólfinu. Afar steikt, en ógeðslega gaman og gjörsamlega ógleymanlegt.

Svo þegar klukkan var að detta í 10 um morgunn ákváðum við að fara að segja þetta gott og fórum að sofa.

Eftir sirka 3 tíma var ég vakinn og sagt að drífa mig á fætur, þar sem við værum að fara í bæinn. Ég ÓGEÐSLEGA ÞUNNUR tók mig saman og dreif mig út í bíl til að reyna að sofa meira, en það var ekki mikið hægt að sofa, þar sem pabbi þurfti endilega að fara Þorskafjarðarheiðina sem var andstæðan við sléttlendi.

En já, rosalega skemmtileg ferð í alla staði.



Um daginn skellti ég mér á snjóbretti upp í Bláfjöll með Óla. Þetta var í tilefni af skóhlífadögunum í Borgarholtsskóla, sem eru einskonar þemadagar þar sem maður þarf að velja sér eitthvað til að gera allan daginn. Ég valdi mér allavega skíðaferð á miðvikudeginum og Judo á fimmtudeginum.

Það var rosalega gaman á bretti, en við Óli vorum mættir upp í fjall kl sirka 10 og fengum dagspassa á 400 kr., en það var bara út af því að stólalyfturnar opnuðu ekki fyrr en kl 2, þannig við Óli héngum bara í diskalyftu-brekkunum til 2.

Svo var líka ágætt í Judo, en við lærðum m.a. að detta, nokkur brögð, hengingar og lása. Ég verð nú bara að segja að áður en ég fer að æfa eitthvað svona, verð ég að hætta að reykja þar sem þolið er alveg í núlli.

En núna er ég með allsvakalegar harðsperrur út um allt. Ég á erfitt með að reisa mig upp, út af harðsperrum í maganum, og svo er svolítið vont að labba út af harðsperrum í löppunum. Ég hnerraði áðan, það var rosalega vont!

En þetta var rosalega gaman.


14. febrúar 2009 - 05:19
#1 - Karlotta
http://www.karlottah.bloggar.is
hehe gott að heyra að þú skulir hafa það fínt Við verðum svo að taka eitt djamm saman áður en ég fer

14. febrúar 2009 - 15:24
#2 - Þórdís Ösp
Þetta var sko snilldar helgi og algerlega ógleymanleg!

14. febrúar 2009 - 20:41
#3 - Gaui
http://www.gaui.is
Karlotta, jamm verðum að gera það!

Þórdís, klárt mál!

17. febrúar 2009 - 08:14
#4 - Svenni
ok ég fatta ekki alveg.. sagðistu ekki hafa farið á vestfirði? ekki reykjanes nema þú hafir sofið "alla" leiðina í keflavík

17. febrúar 2009 - 16:45
#5 - Gaui
http://www.gaui.is
Svenni... http://gaui.is/img/reykjanes.jpg

17. febrúar 2009 - 16:51
#6 - Svenni
hehe fail... það þarf að fara að finna upp ný nöfn á staði hérna á þessu landi, hvað ertu t.d. mörg Búrfell hérna.. minnir að þau séu um 10




Vantar þig hjálp með BBcode?

Nafn:


Netfang:


Veffang:


Hvað er tólf plús einn?



Skilaboð: