Deila á Facebook
« FaceYourManga.com | Aðalsíða | Verðskrá bankanna »

0 kr. Vodafone í Vodafone
Skrifað mánud. 9. mars 2009 - 23:54
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Um daginn var mér bent á að fá mér splunkunýja tilboðið hjá Vodafone, sem virkar þannig að maður hringir og sendir sms frítt í alla hjá Vodafone. Þannig er þetta auglýst eða sem "0 kr. Vodafone í Vodafone" en svo þegar maður les smáa atriðið kemur annað í ljós.

Ég ákvað að skella mér á þetta í þeirri trú um að þetta væri málið. Ég fékk mér alltaf "Tvöfalt" tilboðið hjá þeim áður, sem virkar þannig að þú borgar 990 kr. og þau koma til móts við þig þannig þú færð 1980 kr. í inneign, en svo hættu þau með það og komu með þetta í staðinn.

Þetta nýja tilboð virkar sem sagt þannig að maður borgar 1500 kr. og hringir frítt í 500 mínútur á 30 dögum og sendir 100 frí sms. Svona við fyrstu áheyrn/lestur hljómar þetta voða vel, en svo þegar maður fer að reikna, er þetta eitt stórt frat.

500 mínútur deildar niður á 30 daga gera rúmar 16 mínútur dag hvern. Það er kannski ekki mikið fyrir þá sem hringja mikið en það sleppur fyrir svona meðalmann eins og mig. En á hinn bóginn eyðist inneignin mín endalaust því einungis einn vinur minn er eftir hjá Vodafone.

Hvað varðar fríu sms'in að það eru 100 sms deild niður á 30 daga, sem gerir rúm 3 sms á dag. Hvaða heilvita maður í dag sendir 3 eða færri sms á dag? Ég allavega nota sms mun meira heldur en símtöl. Þannig þetta tilboð er ekki að gera sig á neinn hátt fyrir mig, nema mér takist að minnka sms-fíkn mína niður í 3 sms á dag. En þá færi ég með mikið meira en 16 mínútur á dag í símtöl - og það ekki einu sinni í Vodafone númer.

Mér finnst þetta bara vera glatað tilboð. Ég myndi miklu frekar vilja gamla "Tvöfalt" tilboðið aftur. En kannski ég fari bara í gamla góða USS pakkann aftur. Aldrei að vita. Nú sem stendur er ég inneignarlaus og er búinn að vera það í allan dag. Ég veit ekki hvort þetta sé valkvíði eða eitthvað annað.




Athugasemdir ():