Deila á Facebook
« 0 kr. Vodafone í Vodafone | Aðalsíða | Facebook & quiz »

Verðskrá bankanna
Skrifað mánud. 16. mars 2009 - 04:50
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Út frá annari umræðu annarstaðar þá ákvað ég að skrifa aðeins um verðskrár bankanna og hvernig hlutverk þeirra er að rukka fyrir hvert einasta atriði sem flokkast undir einhvers konar "þjónustu".

Sama hvað þú þarft að gera hjá bankanum þínum að þá ertu án efa rukkaður fyrir það. Hvort sem það sé að fá útprentað eitthvað heimskulegt eyðublað fyrir einhverju láni, endalaus seðilgjöld, kvittanir sendar heim, í sms'i eða jafnvel tölvupósti. Það er rukkað fyrir allt.

Íslandsbanki / Glitnir:

6.3 Yfirlit, sent í pósti/tölvupósti ... 95 kr.

11.14 Rafræn birting ... 40 kr

14.3 Kvittanir sendar í tölvupósti ... 75 kr.

16.6 Útprentun á lánayfirliti (1 stk.) ... 1.000 kr.

Landsbankinn:

9.3.5. Rafrænt yfirlit í netbanka ... 45 kr.

10.7. Senda tilkynningu með tölvupósti ... 40 kr.

14.5. Rafræn birting ... 45 kr.

Kaupþing:

7.6 Rafræn yfirlit í netbanka ... 45 kr.

8.4 Tilkynning send með tölvupósti ... 40 kr.

14.1 Send kvittun ... 90 kr.

16.2 Útprentun greiðsluyfirlita o.fl. ... 100 kr.

Svo mætti lengi telja...

500 A4 blöð kosta rétt rúmar 1000 kr. úti í búð og því er blaðið á 2 krónur. Það að rukka að lágmarki 100 kr. fyrir útprentun á einu helvítis blaði er algjörlega óforskammað.

Ég er ekki mikið fyrir gluggapóst og því borga ég ekki seðilgjöld, en þegar fólk hefur fattað það að seðilgjöld eru óþarfi og hafa reynt að komast framhjá þeim með því að fá allt rafrænt, að þá er byrjað að rukka fyrir það eitt að senda kvittanir/yfirlit í tölvupósti. Það er ekki eins og þetta sé gert handvirkt. Þetta er alveg fáránlega heimskulegt.

Tökum að lokum eitt dæmi. Ef ég myndi taka lán í, segjum 40 ár, og þyrfti að fá yfirlit yfir lánið í hverjum mánuði (1000 kr.). Það myndi þýða að ég væri að borga 480.000 kr. í eintóman pappír. Margt smátt verður eitt stórt.

Því spyr ég, hvernig getur bankinn verið að ráðleggja manni hvernig maður eigi að spara þegar hann er sjálfur að ræna mann og reyna að fá mann til að borga einhver endalaus þjónustugjöld? Þetta er einfaldlega hræsni og ætti ekki að viðgangast.




Athugasemdir ():