Deila á Facebook
« Verðskrá bankanna | Aðalsíða | Helgin hálfnuð - Bjórkvöld & Gus Gus »

Facebook & quiz
Skrifað fimmtud. 19. mars 2009 - 16:16
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ef það er eitt sem ég hata við nýja Facebook vefinn að þá eru það þessi endalausu quiz sem eru byrjuð að fylla skjáinn hjá manni.


Mér er í raun alveg sama hvaða Friends persóna þú ert, hvaða enska fótboltalið þú ert, hver greindarvísitala þín er eða hvaða litur þú ert. Mér er alveg slétt sama!

Mér finnst alveg glatað að það sé ekki hægt að láta Facebook filtera þetta út hjá sér. Það sýnir bara hversu vel Facebook stjórnendurnir fylgjast með notendum sínum.

Hins vegar er komin lausn fyrir þá sem reita öll hárin á höfði sér þegar þeir sjá þetta, en hún er ekki í gegnum Facebook, heldur í gegnum viðbót fyrir FireFox. Maður verður sem sagt að nota FireFox.

Þetta eru 3 sáraeinföld skref...

1. Ná viðbót fyrir FireFox sem ber heitið GreaseMonkey.

2. Endurræsa FireFox.

3. Smella á "INSTALL" takkann hér (ofarlega hægra megin).

Njótið svo quiz-frírrar Fésbókar!




Athugasemdir ():