Helgin hálfnuð - Bjórkvöld & Gus Gus
Skrifað laugard. 21. mars 2009 - 21:45Ég fékk allt í einu þessa miklu löngun til að blogga, þó ég hafi voða litla hugmynd um hvað mig langi að skrifa. Ég er samt að reyna að skera þessi djamm-helgar-blogg aðeins niður.
Á fimmtudaginn skelltum við Rakel okkur á Hverfis á bjórkvöld. Það var svo freistandi tilboð á barnum. Við fengum 5 bjóra í fötu á 1000 kr. og var það of gott til að sleppa því.
Kvöldið var ágætt. Við kláruðum bara föturnar okkar, hittum eitthvað fólk og fórum svo aðeins yfir á Sólon þar sem við hittum Gumma, Lilju og Ágústu.
Þökk sé Kolfinnu æðibita komumst við niður eftir og svo heim aftur. Takk æðislega fyrir það, ástin mín.
Á laugardaginn vaknaði ég svo bara ógeðslega þunnur og fór beint í skólann, gerði einhverja tímaritgerð í ÍSL-403 og svo eitthvað hópverkefni í ÍSL-503. Hörku dugnaður.
Eftir það kíkti ég í ríkið og keypti mér bjór fyrir helgina og kíkti svo á Helga og Andra í Húsasmiðjunni. Eftir það fór ég bara heim.
Ég lagði mig aðeins fyrir kvöldið og vaknaði svo, fékk mér að borða og fór að taka mig til fyrir kvöldið. Rakel og Fjóla komu svo yfir og við byrjuðum að drekka.
Þegar leið á kvöldið fórum við niður á NASA en Kolfinna var svo yndisleg að skutla okkur aftur. Takk yndið mitt.
Við hittum skrítnasta og í senn leiðinlegasta dyravörð sem við höfum á ævi okkar séð, en hann var með eintóma stæla, sagði öllum með miða að vera fyrir framan í röð, en svo breytti hann allt í einu og sagði okkur að fara til hægri við keðjuna.

Gus Gus voru góðir, nema það að þeir byrjuðu 2 tímum of seint. Húsið átti að opna (skv. miðanum) kl 23:30 og þeir áttu að byrja að spila kl 23:59, en þess í stað byrjuðu þeir kl 2. Vel gert!
En það sem ég er mest ósáttur við er það að þeir hættu að spila kl 4. Fólk borgaði sem sagt 2500 kr. fyrir 2 klukkutíma. Og fyrir utan það, tóku þeir ekkert aukalag! Djöfull var ég ósáttur. NASA var troðfullur og fólk hrópaði "Gus Gus" og "meira meira", en þeir stigu ekki aftur á svið. Djöfulsins rugl. Ég fer ekki á Gus Gus aftur, það er klárt mál.
Eftir þetta ákváðu Rakel og Fjóla að fara heim, en ég var eftir og þá var haldið á Apótekið þar sem ég hitti Ella, Óla og Didda. Við djömmuðum alveg til lokunar þar og fórum svo í eftirpartý til 10 um morguninn. Hörkufjör!
Ég man hins vegar að ég fékk glerbrot upp í munninn og fattaði ekki strax að þetta væri glerbrot og prófaði að bíta í það. Þá molnaði það og ég þaut strax út og hrækti því út úr mér. Svo hrækti ég svona 100x á mínútufresti, þar sem ég hef engan áhuga á að kyngja glerbroti, þó það væri nú ekki nema bara flís, þá getur þetta skorið líffærin gjörsamlega að innan og valdið innvortis blæðingum.
Alls ekki skemmtilegt að lenda í því. En planið í kvöld er ennþá óákveðið. Ætli maður byrji ekki bara að sötra heima og kíki svo niður í bæ. Endar það ekki alltaf svoleiðis?

Einhver, Rakel, ég og Fjóla á Gus Gus

21. mars 2009 - 23:22
#1 - Grétar
#1 - Grétar
Ég er sammála því að 2.500 kr á mann fyrir 2 tíma spilun sé fáránlegt. Ég var samt mjög sáttur þegar ég fór einhverntíman á tónleika með þeim.
22. mars 2009 - 13:55
#2 - Halli
#2 - Halli
Ángæður með bolinn þinn Gaui
DC Rokkar!
22. mars 2009 - 17:38
#3 - Palli
#3 - Palli
Ein hugmynd.....ef þú færð eitthvað óvart uppí munninn, EKKI BÍTA Í ÞAÐ!!!
Halli, klárlega!
Palli, mjög góð hugmynd! Ég geri það ekki aftur framvegis.

23. mars 2009 - 00:03
#5 - Rakel
#5 - Rakel
takk fyrir helgina gaui minn
já synd að þetta voru bara 2 tíma
sætt af Kollu Krúsídúllu að sækja okkur hingað og þangað ;**

Vantar þig hjálp með BBcode?

5 athugasemdir skrifaðar -