Deila á Facebook
« Verðkönnun hjá símafyrirtækjum | Aðalsíða | 1. apríl tölvuormurinn »

Vildarklúbbur Icelandair
Skrifað föstud. 27. mars 2009 - 20:14
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Fyrir mörgum árum skráði ég mig í þennan klúbb fyrir foreldra mína og skráði netfangið mitt undir því. Það voru heiftarleg mistök.

Fyrir svolitlu skráði ég mig svo úr klúbbnum, þar sem ég á ekkert erindi í þennan klúbb nú þegar foreldrar mínir eru komin með sinn eigin tölvupóst.

Ég fékk hins vegar sendan tölvupóst frá þessum klúbbi núna í dag, og hugsaði með mér hvort ég hefði ekki skráð mig úr honum um daginn.

Þannig ég fór á vefsíðuna þar sem maður getur skráð sig úr klúbbnum, sló inn netfangið mitt og fékk þá:

Ekki tókst að skrá þig úr tilboðspóstlista Vildarklúbbs. Viðskiptavinur nú þegar afskráður.


Hvernig stendur á því að þeir séu að senda á netföng sem eru búin að skrá sig úr klúbbnum? Annað hvort eru forritar póstlistans vanhæfir eða þá að sá sem sér um að senda þessi bréf, hafi ekki uppfært listann sinn.

Ég vitna í lögin:

http://althingi.is/lagas/nuna/2003081.html

46. gr. Óumbeðin fjarskipti.
- Notkun sjálfvirkra uppkallskerfa, símbréfa eða tölvupósts, [þ.m.t. hvers konar rafrænna skilaboða (SMS og MMS)],1) fyrir beina markaðssetningu er einungis heimil þegar áskrifandi hefur veitt samþykki sitt fyrir fram.




Athugasemdir ():