Deila á Facebook
« Vildarklúbbur Icelandair | Aðalsíða | Fyrsta apríl bloggið »

1. apríl tölvuormurinn
Skrifað þriðjud. 31. mars 2009 - 18:45
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Það er einhver ormur sem gengur manna á milli, sem ber heitið Downad eða Conficker. Þetta er að vísu ekki nýr ormur, þar sem hann kom fyrst upp á yfirborðið sem Conficker í fyrra en er greindur sem Downad í dag. Talið er að hann muni stökkbreytast á morgun, 1. apríl.

Út frá því sem ég hef lesið að þá hagar þessi ormur sér þannig að hann býr til einhverskonar þjón á tölvu hins sýkta, sem notar þekktan galla í Windows stýrikerfinu. Ormurinn tengist svo einu allsherjar P2P neti og dreifir þar með IP tölu hins sýkta.

Ormurinn býr svo til lista með 50.000 IP tölum/lénum, en hefur einungis samband við 500 af þeim og notar þá til að "matast", þ.e.a.s. fá nýjustu uppfærslur, nýjar aðgerðaráætlanir, o.s.frv.

Nánar um þetta á vef Skyggnis




Athugasemdir ():