Deila á Facebook
« Dugnaður | Aðalsíða | "Velur þú fagmann eða fúskara?" »

Dimmision
Skrifað þriðjud. 28. apríl 2009 - 21:24
0 athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Á föstudaginn síðasta fór ég og dimmiteraði með skólanum mínum. Það var helvíti skemmtilegt og nokkuð skrautlegt, en þetta er í fyrsta skipti sem ég hef dimmiterað. Í þetta skiptið var Borgó mörgæsir.

Nóttin fyrir dimmiteringuna var skelfileg. Ég náði ekki að sofna fyrr en klukkan varð 5 og ég fór á fætur tveimur tímum eftir það, eða kl 7. Ég lét samt svefnleysið ekki á mig fá.

Ég mætti upp í skóla 10 mínútum of seint, en það hafði engin áhrif. Krakkarnir voru bara þarna í Spönginni í hóp að drekka og tala saman. Um leið og ég kom röltu allir upp í skóla í morgunmat.

Ég og aðrar mörgæsir


Ég tók með mér kippu af bjór í bakpoka en versta var að ég kláraði hana áður en ég fór niður í bæ seinna um morguninn. Það var hins vegar ekkert mál, þar sem ríkið var opnað.

En það var ekkert alltof skemmtilegt uppi í skóla. Maður var bara ölvaður í búning og lét alla í skólanum hlæja að sér. Stalst svo af og til inn á klósett til að drekka meira, þar sem maður mátti ekki drekka í skólanum eða á skólalóðinni og úti var ekki skemmtilegasta veðrið.

Svo var farið með strætó niður í bæ. Um leið og við komum niður í bæ var farið í heimsókn í MR þar sem kallað var þá ýmsum nöfnum. Svo var farið í Kvennó og síðan haldið niður á Austurvöll, þar sem allt fylltist af fólki í búningum.

Ég og Valentína í strætó


Ég hitti Gulla félaga minn, Birgittu sem er að vinna með mér og Steinu. Þau eru öll í FÁ og voru öll klædd upp sem cookiemonster, í bláum loðnum búningum.

En já, áfengið kláraðist og ég rölti bara í ríkið og keypti mér alltaf nýjan og nýjan bjór. Þannig maður var alltaf með eitthvað í höndinni, það vantaði ekki.

Svo þegar leið aðeins á daginn og klukkan var orðin 2, ákvað ég að segja þetta bara gott og fara heim og leggja mig, þar sem ég átti að mæta í mat á Sólon kl hálf 8.

Þegar ég kom dreif ég mig bara úr búningnum og beint upp í rúm og reyndi að sofna. Það gekk hins vegar erfiðlega að sofna þar sem ég hafði verið að drekka mikið af Cult Shaker þarna um daginn, og Cult er náttúrulega orkudrykkur. En ég náði að lokum að sofna.

Ég vaknaði handónýtur, dreif mig í sturtu og jakkafötin og beint á Sólon. Ég mætti einhverjum 20 mínútum of seint, en það var ekkert vesen, þar sem maturinn byrjaði ekki fyrr en kl sirka hálf 9.

Ég sá Gumma þarna á barnum og sá ekki neitt laust sæti við eitthvað borð, þannig ég ákvað bara að setjast við barinn og spjalla við Gumma.

Þetta var skelfilega illa undirbúið þarna á Sólon. Salurinn (efri hæðin) tók miklu minna í sæti heldur en við var búist. Réttara sagt tók salurinn 90 manns í sæti en þarna voru 130 manns.

Auk þess var hlaðborð. Ég bjóst við flottri máltíð fyrir 2200 kr. en þetta endaði bara í algjöru rugl hlaðborði. Maður fór í röðina þarna, beið í 20 mínútur og þegar komið var að manni, var allt það góða búið. Svo þegar það kom áfylling á það góða myndaðist aftur röð 3000 og maður fékk ekki neitt.

Eina sætið sem ég fékk var sem sagt við barinn. Svo á meðan allir voru að borða var fólk náttúrulega að gera sér endalausar ferðir á barinn og troðandi sér á milli mín og annara á meðan við vorum að borða. Djöfull fór þetta í mig.

Ég nennti ekki þessu rugli, fékk mér 2 bjóra og 2 skot og fór svo bara til Helga, þar sem ég hélt áfram að drekka. Svo fórum við í bæinn á smá tjútt. Ég, Helgi, Rakel og Gugga litla.


Engar athugasemdir.



Vantar þig hjálp með BBcode?

Nafn:


Netfang:


Veffang:


Hvað er tólf plús einn?



Skilaboð: