"Velur þú fagmann eða fúskara?"
Skrifað föstud. 1. maí 2009 - 04:11Mig langaði aðeins að skrifa um auglýsinguna sem feministar vældu út af. Ég sá þessa auglýsingu í Fréttablaðinu um daginn. Vissulega vakti hún strax athygli mína, bæði þar sem hún var á heilsíðu ásamt því að samspil myndarinnar og textans vakti forvitni.

Ég sé þarna illa tilhafðan mann eða lækni með sprautu og einhvern sjúkling liggjandi á borði fyrir framan hann. Maðurinn er augljóslega ekki fagmaður, ef horft er út frá umhverfi og útliti hans. Hann lítur grunsamlega út, ásamt því að hann er illa tilhafður og óhreinn. Læknar eru oftast hreinir og snyrtilegir, þar sem þeir þurfa að fylgja ákveðnum reglum um hreinlæti.
Feministar vilja meina að það sé vegið að konum í þessari auglýsingu og segja að þarna liggi kona á bekknum og að auglýsingin sé tilvísun í ólöglegar fóstureyðingar.
Ég hef aldrei heyrt aðra eins vitleysu sem á ekki við nein rök að styðjast. Það eru t.d. engin merki um að þetta sé kona liggjandi þarna. Rökin sem feministar hafa komið með eru "kvenlegir fótleggir", en það eru engin rök þar sem þessir fótleggir eru ekki einu sinni kvenlegir! Auk þess hef ég aldrei vitað til þess að það sé hægt að sprauta fóstur úr konum?
Mér finnst þetta nú bara með betri auglýsingum sem ég hef séð á Íslandi. Hún vekur strax athygli, forvitni og umtal, og það er einmitt það sem góðar auglýsingar eiga að gera. Samtök Iðnaðarins hefðu bara strax átt að fara í hart, þar sem feministar hafa engin rök máli sínu til stuðnings.
Muna ekki allir eftir Smáralindabæklings-málinu?

Athugasemdir (