Lokapróf
Skrifað fimmtud. 7. maí 2009 - 02:54Það hefur fátt verið uppi á könnunni hjá mér upp á síðkastið annað en að læra fyrir þessi lokapróf sem ég er búinn að vera í. Ég tók alla síðustu helgi í að læra, þannig ég var nokkuð ánægður með árangurinn í prófunum. En það er sko ekkert grín að vera í íslensku 403 og 503 á sama tíma og þurfa að taka lokapróf í báðum áföngunum og fá einungis einn dag á milli prófanna til að læra/rifja upp.
En ég er allavega búinn núna. Ég er ekki búinn að fá einkunnirnar úr prófunum en fékk það staðfest að ég væri búinn að ná íslensku 403, og þar sem mér fannst mér ganga verr í því prófi heldur en í 503, geri ég ráð fyrir því að ég hafi náð 503 líka.
Svo er útskriftin mín 23. maí nk. sem þýðir að ég þarf að fara að byrja að skipuleggja veisluna mína, hvort ég ætli að halda risastóra veislu eða hvað. Ég þarf líka að muna að ná í stúdentahúfuna mína. Það væri frekar asnalegt að vera húfulaus í útskriftarathöfninni uppi í skóla.
En til gamans bjó ég til lítið forrit sem reiknar út hvað maður þarf að fá á lokaprófinu út frá vægi annareinkunnarinnar. Mjög sniðugt og gagnlegt forrit sem ég á eflaust eftir að nýta mér mikið í framtíðinni.
Segjum þetta bara ágætt í bili.

Athugasemdir (