Deila á Facebook
« Lokapróf | Aðalsíða | Eurovisionhelgin 2009 »

Eurovision 2009 pælingar
Skrifað föstud. 15. maí 2009 - 00:01
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég horfði á báðar undankeppnirnar núna í ár og verð nú bara að segja að atriðin í seinni undankeppninni heilluðu mig mun meira heldur en í þessari fyrri. En það eru mörg mjög góð lög núna í ár og því er keppnin hörð.

Ég tel að það séu nokkur lönd sem munu gera okkur mjög erfitt fyrir að vinna keppnina núna í ár, og nánast ómögulegt. Það er til að byrja með Grikkland og þar á eftir koma Malta, Úkraína og Tyrkland.

Ef ég ætti að giska á topp 5 myndi ég giska á að það væri eitthvað á þessa leið...

1. Grikkland (Sakis Rouvas - This Is Our Night)
2. Tyrkland (Hadise - Düm Tek Tek)
3. Úkraína (Svetlana Loboda - Be My Valentine)
4. Malta (Chiara - What If We)
5. Ísland (Yohanna - Is It True)

Ég hef hins vegar eðlishvöt og fylgi henni oftast þegar um söng er að ræða, og það er hvort ég fái gæsahúð. Í þessari keppni voru tvö lönd sem létu mig fá gæsahúð, og voru það Ísland og Malta. Þannig ef þetta væri Gauavision væri klárt mál hver hreppti vinninginn þar.

En hvort sem að við vinnum eða töpum þá er aðalmálið að við komumst áfram í aðalkeppnina. Svo er líka aðalmálið bara að reyna að skemmta sér. En það að Jóhanna hafi komist áfram gerir helgina 10x skemmtilegri og meira spennandi.




Athugasemdir ():