Deila á Facebook
« Eurovision 2009 pælingar | Aðalsíða | Ritskoðun internetsins »

Eurovisionhelgin 2009
Skrifað fimmtud. 21. maí 2009 - 19:25
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Þá er Eurovisionhelgin liðin og skemmti ég mér stórvel. Ekki skemmir heldur gengi Jóhönnu í keppninni en mér fannst hún standa sig frábærlega og var landi okkar til sóma!

Við strákarnir hittumst heima hjá Gaua bróðir Gumma þar sem við grilluðum, drukkum áfengi og horfðum á keppnina í heild sinni. Þetta var alveg ótrúlega gaman og vil ég bara þakka Gaua kærlega fyrir að hafa nennt að halda þetta.

Eftir að keppnin var búin var ákveðið að skella sér í bæinn, en ég hef sjaldan séð jafn margt fólk niðri í bæ. Síðast þegar ég sá þetta svona var á Menningarnótt.

Ég kíkti aðeins á Oliver en entist voða lítið þar vegna loftleysis, þar sem staðurinn var alltof troðinn.

Ég rölti þá út til að fá mér aðeins ferskt loft og rakst þá á Arnþór kunningja minn, en við kíktum á Apótekið þar sem ég hitti Rakel.

Við enduðum svo að lokum á London/Reykjavík, þar sem við eyddum kvöldinu í brjáluðum dansi. Ég, Rakel, Grétar, Solla og Arnþór. Brjálað stuð!

Við Grétar enduðum svo í börger á BSÍ hjá Önnu Lúlú um morguninn, þar sem allt annað var lokað. Svo kom Ágústa og sótti okkur og skutlaði okkur heim.

Frábært kvöld en því miður klikkaði ég á því að taka myndavélina með mér svo ég gæti fest kvöldið á filmu. Ansans vesen!

Hins vegar náðist þessi mynd af okkur og tók Sveinbi Superman hana...

Arnþór, Rakel, Solla og ég




Úrslitin fóru allt öðruvísi en ég hafði spáð. En það sem breytir öllu hvað varðar fyrirkomulag keppninnar núna er það að hvert land er með símakosningu fyrir fólkið í landinu ásamt því að það er með einn dómara sem hefur 50% vægi á móti símakosningunni. Þetta er algjör snilld og kemur mikið í veg fyrir landaklíkuskap.

En helstu vonbrigðin varðandi keppnina voru þau hversu mikið Normaðurinn rústaði keppninni, en mér fannst lagið ekkert spes og hann alls enginn söngvari. En þetta lag er jú grípandi og límist gjörsamlega við heilann.

Alexander Rybak fyrir hönd Noregs, sigurvegari Eurovision 2009


Vonbrigðin voru líka þau hversu neðarlega Malta lenti, en mér fannst það lag rosalega flott og rosalega vel flutt hjá henni. Það var samt örlítið bjartsýni hjá mér að spá því í 4. sæti.

En engu að síður er gaman að þessu. Til hamingju Ísland!



Mikið hefur verið rætt um hvort að Jóhanna eigi skilið að fá Fálkaorðuna fyrir afrek sitt í Eurovisionkeppninni, þar sem jú allir í handboltalandsliðinu okkar voru sæmdir Fálkaorðunni fyrir að lenda í 2. sæti á Ólympíuleikunum í fyrra.

Því spyrja margir sig, af hverju ætti landsliðið að fá Fálkaorðuna þegar það lendir í 2. sæti en ekki Jóhanna þegar hún lendir í 2. sæti í Eurovision. Mér finnst alveg réttlátt að Jóhanna verði sæmd orðunni líka, þar sem þetta er svipað afrek og hjá landsliðinu og finndist mér það mismunun ef hún hlyti ekki orðuna fyrir afrek sitt.

En ef Jóhanna fær orðuna, ætti Selma þá ekki líka að fá eitt stykki orðu, þar sem hún lenti jú í 2. sæti árið 1999 með lagið All Out Of Luck.

Fáir vita að Fálkaorðan skiptist í 5 stig þannig fyrsta stigið sem handboltastrákarnir hlutu er ekki ýkja merkilegt. Jóhanna og Selma ættu því að sjálfsögðu að hljóta sömu orðuna!

Hin íslenska fálkaorða

"Fyrsta stig orðunnar er riddarakrossinn og flestir orðuþegar eru sæmdir honum. Annað stigið er stórriddarakross, síðan stórriddarakross með stjörnu og loks stórkross. Æðsta stig orðunnar er keðja ásamt stórkrossstjörnu en hana bera einungis þjóðhöfðingjar."

http://forseti.is/Forsida/Falkaordan/



Ég er kominn með vinnu í sumar, en ég sótti um í Húsasmiðjunni um daginn og var ráðinn á staðnum. Þvílíkt ánægður með það og er bara gaman að vinna með þessu fólki þarna. Heppilegt líka að ég þekki alla sem eru að vinna þarna með mér. Bara gaman!

Þetta er svolítið frábrugðið frá því sem ég er vanur í Súðarvoginum þegar ég var þar tvö sumur, en þetta er fljótt að venjast held ég. Ég er aðeins byrjaður að komast inn í þetta.

En maður er þó með vinnu og ekki er það slæmt á tímum sem þessum!




Athugasemdir ():