Deila á Facebook
« Eurovisionhelgin 2009 | Aðalsíða | Fyrsta bloggið á árinu 2010 »

Ritskoðun internetsins
Skrifað miðvikud. 10. júní 2009 - 20:34
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja þá er búið að stíga fyrsta skrefið í átt að netlöggu og ritskoðun internetsins á Íslandi. Ástæðan fyrir þessum aðgerðum var vegna eineltis- og meiðyrðamála á síðunni Ringulreið, sem innihélt m.a. myndir, upplýsingar og meiðyrði um krakka sem voru ekki orðnir sjálfráða.

Mér finnst fjarskiptafyrirtækin, bæði Síminn og Vodafone, vera að fara úr hlutverki sínu sem fjarskipta- og samskiptaaðilar yfir í það að vera einhvers konar dómari á hvað sé okkur Íslendingum við hæfi á internetinu. Ég kýs að sjá um að velja og hafna sjálfur hvað það er sem ég skoða á netinu.

Þetta mál brennur á vörum flestra sem nota internetið ekki einungis til að lesa fréttirnar og er mikill hiti í mönnum - þ.á.m. mér. Þó mér sé alveg sama um þessa tilteknu síðu er það bara það að það er núna búið að setja fordæmi um að það sé í lagi að ritskoða internetið.

Nú þegar búið er að stíga fyrsta skrefið og setja fordæmi fyrir ritskoðun internetsins er ekkert því til fyrirstöðu að aðrir aðilar/samtök geti farið fram á að láta loka öðru á netinu. Til dæmis SMÁÍS og STEF hvað varðar Torrent síður og aðrar síður sem leyfa fólki að niðurhala höfundarréttarvörðu efni, Feministafélagið hvað varðar klám, o.s.frv.

En það hefur verið svolítið deilt um það hvort það sé í raun verið að brjóta í bága við fjarskiptalög- og reglugerðir.

Skv. 1223/2007 7. gr. um vernd, virkni og gæði IP fjarskiptaþjónustu:

"Búnaður og samskiptahættir er stýra IP fjarskiptaumferð, skulu vera varin á sem æskilegastan máta gegn hvers konar þjónustusynjun og röngum leiðar­upplýsingum."


Skv. 1221/2007 5. gr. um vernd upplýsinga í almennum fjarskiptanetum:

"Fjarskiptafyrirtæki skulu tryggja að viðskiptavinir þeirra njóti verndar gagnvart hlustun, hlerun, geymslu eða annars konar hindrun eða vöktun fjarskipta, þ.m.t. skilaboða og auðkenna, sem fara um fjarskiptanet þeirra, nema að slíkt fari fram með samþykki viðskiptavinanna eða samkvæmt heimild í lögum."




Athugasemdir ():