Deila á Facebook
« Nexus One | Aðalsíða | Vorferð 2010 »

vDSL vs. ADSL
Skrifað föstud. 30. apríl 2010 - 01:37
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég ákvað að reyna að sannfæra fjölskylduna mína um að fá sér Ljósnet Símans (vDSL) en til þess þurfti ég miklar samanburðarpælingar. Þess vegna ákvað ég að skrifa þennan pistil hér.

Ég er með 8 Mb ADSL núna (8 Mb / 8 = 1 MB). Mb segir til um hversu hratt maður sækir af netinu eða hver sækihraðinn þinn er. Ef þú deilir 8 með 8 færðu út hversu mörg MB (MegaByte) þú ert að sækja á sekúndu. Þannig á minni núverandi tengingu er ég að sækja um 1 MB á sekúndu.

Tökum til dæmis bíómynd; hún er rúm 700 MB. Ef við reiknum út frá minni núverandi tengingu er ég rúmar 11,67 mínútur að sækja heila bíómynd. Ef ég ætla að senda heila bíómynd tekur það mig rúmar 21 mínútu þar sem upload hraði (sendihraðinn) er allt niður í 20% af download hraðanum (sækihraðinn). Gefið er upp að vDSL sé allt niður í 50% af sendihraðanum og því ef þú ert með 50 Mb ljósnet ættiru að vera að senda 25 Mb á sekúndu eða rúm 3 MB á sekúndu. En þetta fer auðvitað allt eftir internetþjónustuaðilum.

Ef ég fengi mér 50 Mb Ljósnet frá Símanum (vDSL) erum við að tala um 50 Mb tengingu. Þannig sækihraðinn yrði þá ~6 MB á sekúndu og sendihraðinn ~3 MB á sekúndu. Þannig ef ég ætlaði að sækja heila bíómynd sem er 700 MB tæki það mig rúmar 2 mínútur og rúmar 4 mínútur að senda heila bíómynd.

Nú þegar tæknin þróast ört eru komnar svokallaðar HD bíómyndir (High Definition). Sem sagt bíómyndir í háskerpu! Sem sagt bíómyndir þar sem sjónvarpið mitt fær að njóta sín! Þar erum við að tala um að ein bíómynd er allt upp í 4 GB (GigaByte) og þá erum við ekki einu sinni komin út í háskerpu þar sem DVD er ekki HD (háskerpa). Það fer auðvitað allt eftir því í hvernig gæðum myndin er en besta fáanlegu gæðin eru 1080p Blu-Ray. Ef við myndum taka til dæmis AVATAR (rúmlega þriggja tíma mynd) í 1080p Blu-Ray væri stærðin á henni rúm 45 GB (GigaByte) eða rúm 45.000 MB (ég veit að það eru 1024 KB í 1 MB ... rúmlega, kids!) en 700 MB myndin sem við töluðum um áðan er þá rúmlega 1,5% af þeirri stærð.

Segjum að ég myndi sækja AVATAR í 1080p Blu-Ray á núverandi ADSL tengingu, væri ég í 12,5 klukkutíma. Þá erum við að tala um ef tengingin væri upp á sitt besta og við færum að fá FULLAN sækihraða (sem eru hverfandi líkur). Ef ég myndi svo senda myndina væri ég í rúma 23 tíma.

Út frá Ljósneti Símans væri ég í rúma 2 tíma að sækja hana, sem sagt 1080p útgáfuna af AVATAR á Blu-Ray, og rúma 4 tíma að senda hana.

Ótrúlegur munur.

ATH! Þessi skrif mín hér að ofan eru eingöngu ætluð til samanburðar á hraða DSL tenginga en ekki til að sýna fram á að ég stundi ólöglegt niðurhal - sem ég geri að sjálfsögðu ekki!




Athugasemdir ():