Deila á Facebook
« vDSL vs. ADSL | Aðalsíða | Android 2.2: Froyo »

Vorferð 2010
Skrifað föstud. 14. maí 2010 - 02:22
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Um daginn fór ég í vorferð með vöruhúsum Húsasmiðjunnar. Þeir sem voru velkomnir í þessa ferð voru bílstjórar Húsasmiðjunnar ásamt starfsfólki í Holtagörðum og Kjalarvogi.

Ferðinni var heitið fyrst í Skotreyn þar sem við fengum að skjóta nokkrar leirdúfur. Við ákváðum að búa til smá keppni úr þessu, Kjalarvogur á móti Holtagörðum. Að sjálfsögðu sigraði Kjalarvogur Holtagarða og var staðan 26-22.



Hver einstaklingur fékk 5 skot. Ég hef aldrei skotið úr svona byssu áður en náði samt einhvern veginn að hitta úr öllum skotunum mínum. Ég hugsa samt að ég eigi skotleikjafíkn minni að þakka það að ég hafi hitt svona vel.

Næst var ferðinni haldið alla leið í Grindavík þar sem við skelltum okkur á fjórhjól. Það voru tveir saman á hjóli nema þeir sem borguðu aðeins extra, þeir fengu að vera einir á hjóli. Að sjálfsögðu borgaði ég smá extra og fékk að vera einn á hjóli. Ekkert annað hægt.

Eftir þessu svakalegu ferð langar mig að fá mér skotvopnaleyfi og kaupa mér fjórhjól. Það er alveg á kristaltæru að þetta er eitthvað sem ég gæti vel hugsað mér sem áhugamál.

En eftir ferðina var haldið upp í Holtagarða og var dýrindis lambafillé skellt á grillið.

Alveg topp ferð í alla staði, rosalega gaman, og vil ég bara þakka kærlega fyrir mig. Þetta er eitthvað sem ég hefði ekki viljað missa af.





Athugasemdir ():