Deila á Facebook
« Vorferð 2010 | Aðalsíða | Yfir í Chrome »

Android 2.2: Froyo
Skrifað fimmtud. 20. maí 2010 - 23:17
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Nú nálgast óðfluga nýjasta Android stýrikerfið frá þeim Google mönnum. Ber kerfið heitið Froyo og er útgáfa 2.2 af Android kerfinu.

Á næstu vikum mega eigendur nýlegra Android síma búast við uppfærslu á símunum sínum upp í útgáfu 2.2 af Android. Að sögn HTC munu "líklega" allir símar seldir á árinu 2010 fá uppfærsluna á þessu ári.


Google heldur árlega ráðstefnu, Google I/O, þar sem tækninýjungar fyrirtækisins eru kynntar fyrir almenningi/gestum ráðstefnunnar. Á þessari ráðstefnu var m.a. kynnt Google TV og Froyo, sem ég ætla aðeins að fjalla um hér.

Froyo mun m.a. bjóða upp á eftirfarandi:

  • Töluvert meiri hraða
  • Tethering / Mobile HotSpot
  • Hraðvirkasta farsíma-vafrann hingað til, að sögn Google
  • Viðbætur fyrir vafrann; myndavél, stefnumörkun, o.s.frv.
  • Stuðningur fyrir Adobe Flash
  • Möguleika á að setja upp forrit á SD kortið
  • Sér uppfærslu takka og/eða sjálfkrafa uppfærslur forrita og símans
  • Music Desktop Stream

Þegar þeir tala um meiri hraða eru þeir að tala um nýjan realtime compiler fyrir forrit sem kallast JIT Compiler og stendur fyrir "Just-in-Time".

Samkvæmt smá rannsókn er Android 2.2 eða Froyo sagt vera 450% hraðara heldur en fyrirrennari þess, Android 2.1, og mun það mest allt vera JIT að þakka.

Annað sem er mjög spennandi við Froyo er möguleikinn á Tethering eða Mobile HotSpot. Það sem sagt gefur þér möguleika á því að nota 3G/WiFi netsamband símans í gegnum fartölvu eða annað tæki.

Froyo mun, að sögn Google, bjóða upp á hraðvirkasta farsíma-vafrann í heiminum. Á bakvið þetta er náttúrulega V8 JavaScript vélin ásamt ýmsum eiginleikum úr þriðja vinsælasta vafranum í dag; Chrome.

Froyo mun bjóða upp á stuðning við Adobe Flash, sem allir ættu að kannast við. Útgáfa 10.1 af Flash mun vera byggð inn í Froyo kerfið. Mér persónulega finnst Flash vera lífsnauðsyn þannig ég tel þetta vera mjög góðan hlut!

Ein allra mesta snilldin við Froyo er að mínu mati möguleikinn á að geta sett upp forrit á SD kortið í símanum. Hingað til hefur þetta ekki verið hægt nema að roota (aflæsa) símann. Ókosturinn við að geta þetta ekki er sá að innra minni símans er ekki nema 512 MB, þannig maður er enga stund að fylla innraminnið af forritum. Svo þegar það er orðið fullt, þarf maður að vesenast við að velja og hafna forritum sem maður hefur not fyrir. En með þessum möguleika er hægt að setja allt upp í 32 GB SD kort í símann og setja upp öll forritin á SD kortið, og þá mun taka svolítinn tíma að fylla það. Þetta finnst mér vera algjör snilld og algjör nauðsyn! En þetta er staðfest, þannig ég get hætt að hafa áhyggjur af þessu.

Þeir hafa nú bætt við möguleika á að fá sjálfkrafa uppfærslur af forritum. Hingað til hefur maður alltaf þurft að sækja uppfærslurnar handvirkt og hefur það oft getað tekið smá tíma þegar uppfærslurnar eru orðnar margar. En þetta vandamál heyrir nú sögunni til.

Ég veit ekki alveg nógu mikið um þennan desktop stream möguleika, en þeir segjast ætla að gefa færi á því að streyma tónlist beint frá heima- eða fartölvunni. Ég veit ekki meira en það. Það verður spennandi að sjá.

En áður en ég læt þetta gott heita langar mig að forvitnast hvað varð um FM radioið sem Google voru búnir að nefna? En sá möguleiki er langt frá því að vera á toppnum hjá mér yfir nauðsynlegar uppfærslur/viðbætur. Ég er sáttur.




Athugasemdir ():