Deila á Facebook
« Android 2.2: Froyo | Aðalsíða | Firesheep - öryggi netnotenda í hættu? »

Yfir í Chrome
Skrifað fimmtud. 12. ágúst 2010 - 22:50
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Hingað til hef ég bara notað FireFox. Ég hef fordæmt aðra vafra, fyrirlitið þá og ekki viljað koma nálægt þeim. Ég sá ekkert nema FireFox. Ég hef áður verið kynntur fyrir Google Chrome en á þeim tímapunkti gat ég ekki slitið mig frá FireFox.


Upp á síðkastið hefur FireFox fært sig meira og meira og upp á skaftið. Hann hefur alltaf látið ágætlega hjá mér, en hefur alltaf átt það til að hrynja vikulega. Jafnvel oftar. Þökk sé frábæru crash recoveri hef ég oftast getað náð aftur í það sem ég var að skoða. En aftur á móti kom fyrir að ég var að skrifa heila ritgerð í textadálk á vefsíðu, opnaði svo einhvern tengil frá vini mínum sem innihélt Flash myndband og allt gjörsamlega hrundi hjá mér. FireFox tókst að recovera allar síðurnar mínar (sem ég var að skoða), en textinn sem ég hafði verið að skrifa var horfinn.

En eftir einmitt þetta atvik fékk ég alveg nóg. Ég ákvað því að gefa Google Chrome annað tækifæri - sem ég sé sko ekki eftir!

Fyrir rúmu einu og hálfu ári kom Chrome stable út. Ég prófaði hann og leist alls ekki nógu vel á hann. Hann var svo hrár, tómur og hafði enga fítusa. En aftur á móti var hann hraður. En það var ekki það sem ég var að leitast eftir á þeim tíma, heldur vildi ég þægindi umfram hraða.

Í dag er Chrome öllu skárri. Þeir eru búnir að bæta við nokkrum vel völdum fítusum, en þeir eiga mjög langt í land. FireFox er satt að segja notendavænsti vafrinn á markaðnum. Hann býður upp á svo marga möguleika sem Chrome (því miður) býður ekki upp á.

En það sem sigraði hjarta mitt var það hversu snilldarlega hannaður Chrome er. Hver einasti gluggi sem þú opnar og hver einasti tab er sér process. Það gerir það að verkum að þú getur verið í fullri vinnslu með 10 tabs í einum glugga, þess vegna verið að skrifa BS ritgerðina þína. Svo frýs einhver tab í glugganum þar sem BS ritgerðin þín er. Þá ferð þú bara í innbyggða Task Managerinn í Chrome og drepur þann tab (eða Flash extensionið í heild sinni).

Ef þetta hefði verið í FireFox hefðir þú þurft að drepa allt firefox.exe processið og þurft að byrja alveg upp að nýju. Þarna eru Google menn alveg með þetta. Þeir viðurkenna að vafrinn/vefsíður geti crashað þannig þeir hafa fundið upp yndislega lausn til að komast fram hjá því að missa öll gögnin sín þó einn tab fari að láta illa.

Þetta er eitt af því sem ég elska við Chrome. En ekki misskilja mig, Chrome er alls ekki fullkominn. Hann nær mjög langt með hraða sínum og process strúktúrnum, en innviðið er ennþá mjög hrátt.

Ég skal nefna nokkur atriði sem pirra mig verulega við Chrome.

  • Viðmótið er ömurlegt og alls engu líkt sem maður hefur vanist hingað til. Engin rönd uppi eins og á öllum forritum í Windows og þess vegna er tabstikan óþægilega ofarlega. Svo er valmyndin öll hægra megin sem ég hef enn ekki vanist.
  • X'in eru alltaf við hliðina á töbunum, jafnvel þó þeir séu ekki valdir, þannig þú getur alltaf "óvart" lokað tab.
  • Hann sækir proxy stillingar frá IE.
  • Það er ekki gott Flash support.
  • Ef ég loka óvart glugga með 10 tabs kemur engin viðvörun áður en hann lokast. Það er hins vegar hægt að opna tóman glugga aftur og halda inni CTRL+SHIFT+T til að fá tabana aftur. Auk þess er komið extension fyrir þetta, en Google menn hafa ekki enn byggt þetta inn í vafrann.
  • Allir linkar opnast í nýjum tab í "ferskasta" glugganum þínum. Ef ég opna tengil sem einhver sendir mér í tölvupósti, opnast hann í nýjum tab. Ef ég opna tengil í öðru forriti en Chrome, opnast hann í nýjum tab. Þetta hafði ég val um í FireFox en ekki Chrome - ALLT Í NÝJAN TAB.
  • Textarea boxin, ef þú smellir á örina í boxinu hoppar boxið um 3 línur. Það á bara að hoppa upp/niður um 1 línu! Þetta er virkilega pirrandi hlutur sem ég er að taka eftir núna.
  • Það er ekki hægt að skoða upplýsingar um mynd án þess að vista hana fyrst.
  • Það er ekki hægt að opna skrá (temporary files) án þess að vista hana fyrst.

Það eru eflaust mörg önnur atriði sem þarf að bæta við/lagfæra, en þar sem reynsla mín af Chrome er ekki mikil og ég bara búinn að nota hann í þennan stutta tíma, hef ég bara rekist á þessi atriði. En ég bíð bara og vona eftir að þetta muni lagast. Ég hugsa samt að ég fari ekki aftur yfir í FireFox.




Athugasemdir ():