Deila á Facebook
« Firesheep - öryggi netnotenda í hættu? | Aðalsíða | Á lífi »

Addon fyrir Chrome
Skrifað föstud. 29. október 2010 - 00:33
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég er núna búinn að nota Chrome í nokkra mánuði og líkar bara vel. En ég hef á þeim tíma uppgötvað nokkur sniðug addon fyrir Chrome.

AdBlock
Fjarlægir auglýsingar og annað drasl af síðum. Þetta er samt ekki nærri því eins gott og Adblock addonið í FireFox. Ég sakna þess.

CSSViewer
Ýtir á takka og þú getur skoðað öll element á síðum. Rosalega sniðugt fyrir vefsíðugrúskara.

Facebook Purity
Hreinsar Facebook hjá manni. Felur posta frá apps og þegar einhver attendar event, verður vinur einhvers, o.s.frv. Lífsnauðsynlegt addon!

Image Properties Context Menu
Bætir við "Properties" valmynd svo þú getir séð upplýsingar um myndir (stærð, hlutföll, o.s.frv.)

KB SSL Enforcer
Neyðir Chrome til að nota HTTPS (öruggt) staðalinn þegar síðan býður upp á það. ]Ástæðuna má finna hér.

New Tab, New Window
Ég hef alltaf hatað við Chrome að hann opnar alltaf alla linka í nýjum tab. Ég vil t.d. að linkar sem ég fæ í tölvupósti opnist í nýjum glugga. Þetta reddar því.

Pastebin
Mjög sniðugt fyrir þá sem nota pastebin.com mikið.

Session Buddy
Session managerinn í FireFox er EKKERT á miðað við þennan! Þetta er til þess að halda utan um session í vafranum, hvern glugga, hvern tab, o.s.frv.

Shareaholic
Ef þú ert mikið fyrir að deila einhverju á Facebook og vilt vera snöggur að því.

Turn Off the Lights
Gerir alla síðuna svarta á meðan þú horfir á YouTube myndbönd. Algjör snilld!

Web Developer
Mjög sniðugt addon fyrir vefgrúskara. Svipar til þess sem er til fyrir FireFox.

Window Close Protector
Spyr þig hvort þú viljir loka gluggum með mörgum töbum. Lífsnauðsynlegt!

WOT
Segir þér hvort að síða sé örugg eða ekki.

Facebook Photo Zoom
Rosalega þægilegt fyrir þá sem skoða mikið af myndum á Facebook. Þeir þurfa héðan í frá ekki að opna hverja mynd fyrir sig til að skoða hana í fullri stærð, nóg er að fara með músarbendilinn yfir hana.


Þetta er allt í bili. Ef þú veist um einhver fleiri sniðug Chrome addon, endilega láttu það flakka hingað!




Athugasemdir ():