Deila á Facebook
« Myndir úr Ítalíuferðinni | Aðalsíða | Skólinn byrjaður - Tekið hart á því? »

Tapsár
Skrifað fimmtud. 5. janúar 2006 - 17:42
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég tók þátt í Hostel SMS leiknum núna áðan. Til að vinna þarf maður að senda "JA BSH" á númerið 1900 og lenda í 11. sæti. Ég sendi þrjú sms. Í fyrsta skipti lenti ég í 5. sæti og vann ekki neitt. Þá beið ég í smá stund og prófaði aftur, þá lenti ég í 7. sæti. Þá beið ég ennþá lengur og lenti svo loksins í 11. sæti. Ég bjóst nú við því að vinna miða á myndina en þess í stað vann ég þrjár hálfslítra kók! Ég sem drekk ekki einu sinni kók. Í þessari auglýsingu stendur: "Vinningar eru bíómiðar fyrir tvo - DVD myndir - Magic - Tölvuleikir - Varningur tengdur myndinni og margt fleira". Blekkjandi auglýsing. Það eru ekki bara 1/11 líkur á því að þú vinnir, heldur eru mestar líkur á því að þú vinnir bara eitthvað drasl! Ég tek allavega ekki aftur þátt í svona drasli. Ég eyddi 297 kr. í kók! Ég þakka bara fyrir að ég hafi ekki tekið þátt oftar.

Allavega, í gær þá fóru ég, Guðrún, Jökull, Beta og Grétar bara að spila Pictionary heima hjá Jökli. Ég og Gugga tókum samt ekkert þátt, við vorum bara tímaverðir. Svo fórum við á Subway og fengum okkur að borða.

En núna er ég byrjaður aftur að vinna á fullu í Bónus Video með skólanum. Skólinn byrjar reyndar ekki fyrr en á morgun (föstudaginn 6. janúar) en ég byrja að vinna í kvöld.

En það er planað djamm núna um helgina, svona rétt áður en skólinn byrjar. Það verður gaman að sjá hvernig það fer.




Athugasemdir ():