Skólinn byrjaður - Tekið hart á því?
Skrifað laugard. 7. janúar 2006 - 21:33Jæja, skólinn byrjaði í gær. Nú er spurning hvort maður geti tekið hart á því og verið duglegur eftir fremsta megni í skólanum.
Fyrsti tíminn var TÖL113 sem er gagnasafnsfræði (gagnagrunnar - tenging og notkun þeirra), sem mér finnst alveg æðislega skemmtilegt. Verst að þetta er eiginlega allt í Access, en hún sagði að við myndum nota MySQL líka og svo smá PHP. Jibbí!
Því næst fór ég í SÁL103 sem er bara sálfræði. Ég vissi ekki að sálfræði væri í raun svona asnaleg. Ég hélt þetta væri bara greining á sál, hugsun og hegðun en ekki allt þetta sem hann taldi upp í gær.
Alveg með ólíkindum hvað maður segist ætla að gera en gerir aldrei. Eins og í gær var bara tekið það rólega, smá pöbbarölt niðri í bæ og eitthvað svoleiðis. Við ætluðum að spara okkur fyrir morgundaginn sem er í dag, en það er ekki neitt búið að gerast. Enginn búinn að hringja eða neitt, þannig ætli það verði ekki bara bjór og video chill í kvöld? Eða ég veit ekki.
Asnalegt að það sé farið að hækka aldurstakmark inn á suma skemmtistaði upp í 21-25. Einmitt þegar ég er orðinn 20 ára og má kaupa áfengi löglega, kemst ég ekki inn á suma skemmtistaði! Hversu glatað er þetta? Sólon er með 23 ára aldurstakmark, Pravda með 22, Hressó með 22, Rex og Dubliners með 25 og eitthvað svona fáránlegt!
En já, gærdagurinn endaði bara með því að við fórum allir heim og ég til Guggu minnar. Hún var að horfa á Joy Ride þegar ég kom og kláruðum við að horfa á hana saman. Ég verð eiginlega að segja að mér fannst hún ekkert voðalega scary en það er kannski út af því að ég dottaði út ógeðslega kaflann og vaknaði í lok myndarinnar.
Markmiðið í kvöld er allavega að drekka og skemmta mér, þannig það er spurning hvernig það fer. Gugga mín er einhverstaðar með Töru og einhverjum strákum og hún hefur ekki hugmynd um hvert planið er í kvöld, þannig ætli við séum ekki á byrjunarreit. Eitt er víst! Við erum ekki að fara að spila með ákveðnum aðilum.
Ég ætla allavega að byrja á því að henda mér í sturtu og sjæna mig til og svo sjáum við hvað gerist.
Lag dagsins:
Pendulum eru að gera góða hluti hjá mér núna þessa dagana og gerðu þeir drulluflott remix af einu flottasta laginu eftir Prodigy og er það lag dagsins í tilefni af party stemmningunni sem ég er í núna
Prodigy - Voodoo People (Pendulum Remix)

Athugasemdir (