Enginn viljastyrkur - Er maður að komast í æfingu?
Skrifað mánud. 9. janúar 2006 - 21:25Ég er búinn að komast að því að ég hef engan viljastyrk. Ég var kókisti fyrir mörgum árum. Svo einn daginn hætti ég algjörlega að drekka kók og hef ekki snert kók í mörg ár. Ég byrjaði reyndar að drekka eitthvað annað á meðan en svo núna um daginn þegar ég fór til Ítalíu, fékkst ekkert annað þar en kók og núna er ég sokkinn beint í kókið aftur.
En dagurinn í dag var ágætur. Ég fór í skólann og svo eftir skóla fór Gugga með mér að versla bækur í Pennanum og kostaði það "litlar" 7000 kr.
Því næst fórum við heim til Guggu því hún átti að fara að passa en stjúpi hennar var kominn heim þannig hún þurfti ekki að passa. Þá fórum við að hitta Ingvar og Grétar á Café Adesso í Smáralind og vorum þar um stund. Takk Ingvar fyrir kakóið. Það var ljúffengt.
Svo eftir það fórum við að heilsa upp á Höllu á Pizza Hut í Smáralind og svo fórum við bara heim. Frekar rólegur dagur, þó ég hafi gert meira í dag heldur en ég geri flesta aðra daga.
Um daginn fór ég á kickbox æfingu í Pumping Iron með Ingvari og Grétari. Eftir æfinguna gat ég ekki andað því ég var svo þreyttur. Jimmy sagðist ætla að hafa þetta létta æfingu en það var víst bara kaldhæðni hjá honum. Ég er ekki með besta þolið eins og flestir vita. En æfingin gekk vel og stefni ég á að mæta aftur um leið og harðsperrurnar fara.
Svo eftir æfinguna fóru ég, Grétar og Ingvar að pumpa. Ég maxaði ekki en tók 50kg (20kg+20kg+stöng(10kg)) frekar létt. Ég er að spá í að kaupa mér kort þarna og byrja að koma mér í gott form.
Ég hef allavega viljastyrkinn í það, hehe. 
Núna sit ég bara fyrir framan tölvuna og bíð eftir því að Guðrún komi heim. Ég er að spá í að fara og festa spegilinn á bílinn, úr því hann er nú kominn úr viðgerð/sprautun.
Segjum það í bili.

Athugasemdir (