Deila á Facebook
« Enginn viljastyrkur - Er maður að komast í æfingu? | Aðalsíða | Opinbert bréf sent til ritstjórnar DV »

DV - sorprit og morðingjar?
Skrifað þriðjud. 10. janúar 2006 - 18:59
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég hef alltaf haldið því fram að DV væri sorprit, alveg síðan það var skipt um ritstjóra. Í dag sannaðist það. Mikael Torfason og Jónas Kristjánsson eru að vinna hræðilegt verk og standa sig með eindæmum illa í þessari ritstjórastöðu sem þeir eru í.

Í morgun svipti maður á sextugsaldri sig lífi, eftir að það var birt mynd af honum á forsíðu DV og honum bendlað við að hafa nauðgað ungum piltum. Þessar ásakanir eru ekki einu sinni sannaðar og dómur er ekki fallinn í málinu! Vel gert hjá DV að birta einhverja svona óstaðfesta þvælu á forsíðunni sinni og gjörsamlega eyðileggja líf greyið mannsins.

Eftir þetta væri gott ef þjóðin myndi skora á ríkisstjórnina um að leggja DV niður. Þetta mál er bara bein afleiðing af birtingu þessarar fréttar. Ríkisstjórnin verður að grípa í taumana.

Svipti sig lífi eftir ásakanir um kynferðisbrot

Karlmaður á sextugsaldri svipti sig lífi í morgun, eftir að DV birti mynd af honum á forsíðu og bendlaði hann við kynferðislegt ofbeldi gegn ungum piltum. Ásakanirnar gegn honum hafa ekki verið sannaðar og bróðir mannsins segir að DV hafi nánast rekið hann í dauðann.

Á forsíðu DV í morgun var birt mynd af karlmanni með fyrirsögninni "Einhentur kennari sagður nauðga piltum". Fréttin fjallaði um kæru tveggja pilta á hendur manninum fyrir kynferðislegt ofbeldi. Sjálfur sagði maðurinn málið byggt á misskilningi. Þrátt fyrir að enginn dómur hafi fallið í málinu sem í raun er á frumstigi og að orð standi gegn orði, taldi DV rétt að birta mynd af manninum á forsíðu.

Í morgun fann vinur mannsins hann á heimili hans og hafði hann þá tekið eigið líf. Bróðir mannsins sagði í samtali við fréttastofu að fjölskyldan væri sundurtætt af sorg vegna þessa harmleiks. Hann sagðist hafa hringt á ritstjórn DV í dag til að tilkynna þeim andlát bróður síns og fundist rétt að gera það, þar sem hann teldi að fréttaflutningur DV hefði nánast rekið bróður sinn í dauðann.

Jónas Kristjánsson, ritstjóri DV sagðist ekki vera beinn málsaðili að málinu og því vildi hann ekki tjá sig um það þegar fréttastofa hafði samband við hann.


Frétt tekin af visir.is


Hvað finnst ykkur um þetta mál?




Athugasemdir ():