DV - enn og aftur
Skrifað miðvikud. 11. janúar 2006 - 21:35Ég var að enda við það að horfa á Kastljósið. Þar var rætt við Jónas Kristjánsson og Mikael Torfason, ritstjóra DV, meðal annara háttvirtra einstaklinga.
Skoðanir Jónasar og Mikaels á þessu máli fengu mig til að fyllast enn meiri reiði í garð DV. Það er augljóst, skv. þessu viðtali, að þeir eru algjörlega samvisku- og siðferðislausir. Þeir segjast fara með fréttir út af sannleiksgildi þeirra en neituðu alfarið að sýna tillitsemi í fréttaflutningi á meðan sannleiksgildi fréttarinnar væri í hámarki.
Ég sé ekki neitt sannleiksgildi í þessari sögusögn um Gísla. Þetta er bara eintómur rógburður, sögusagnir og getgátur. Ég get ekki lýst í orðum hvað mér fannst um þessi ummæli þeirra í Kastljósinu. Hvar er samviska og siðferðiskennd þeirra og eigenda blaðsins? Þeir hljóta að grípa í taumana og leyfa þessu ekki að fara hljóðlaust fram hjá sér.
Ég vil einnig taka fram að skv. forstöðumanni Blaðamannafélagi Íslands, sem var einnig í Kastljósinu fyrr í kvöld, hefur DV sínar eigin siðareglur til að fara eftir. Hann sagði að siðareglur DV brjóti nokkrar af siðareglum BÍ. Ég spyr bara; Af hverju er blaðamönnum, sem brjóta siðareglur félags sem þeir eru í, leyft að halda göngu sinni áfram í félaginu? Er þetta ekki eitthvað sem vert er að skoða aðeins nánar? Hann tók einnig fram að siðanefnd BÍ myndi á næstu dögum fara yfir og endurskoða siðareglur sínar, en siðareglur DV verða ekki hafðar að leiðarljósi við endurskoðun á siðareglum BÍ.
Ég heyrði að Jóhannes Jónsson, hluthafi í Baugur Group, hafi sagst ætla að íhuga að selja hlut sinn í DV, þar sem hann kærði sig ekki um að vera bendlaður við slíka fréttamennsku. Ég tek ofan fyrir Jóahannesi ef hann gengur alla leið með þessa íhugun sína.
Framtíð DV og ritstjóra þess eru auðvitað í höndum eigenda, auglýsenda og lesenda blaðsins. Ég stórefast um að framtíð blaðsins verði björt ef almenningur hættir einfaldlega að kaupa og lesa blaðið. Ef almenningur hættir að lesa blaðið, hætta sjoppur að græða á sölu þess og auglýsendur byrja á því að stórtapa á auglýsingum sínum. Þar sem birtingarkostnaður auglýsinga í blaðinu vegur á móti þess hversu margir lesa blaðið.
Við getum haft áhrif. Segjum upp áskrift okkar og hættum að lesa DV! Auk þess að snúa við öllum DV blöðum sem þið sjáið í svona rekkum. Það er kominn tími til að við gerum eitthvað í þessu.
Ég sá einnig að það er kominn undirskriftarlisti fyrir þá sem vilja skora á eigendur, blaðamenn og ritstjóra að endurskoða ritstjórnarstefnu sína á þessu blaði. Núna klukkan 8 voru rúmlega 15.000 manns búnir að skrá sig á listann, og á þeim eflaust eftir að fjölga.
Hér má finna þennan undirskriftarlista:
http://www.deiglan.com/askorun/
Ég hef ekkert fleira að segja um þetta mál í bili.

Athugasemdir (