Í dag svaf ég bara út. Ég vaknaði samt klukkan 12 og dreif mig í skólann kl hálf 3. Eftir skóla fór ég svo bara heim og fékk mér að borða og horfði á White Chicks í 17. skiptið á Stöð2 Bíó. ..

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað fimmtud. 30. nóvember 2006 - 02:38



Jæja, þetta er búið að vera ágætt. Jólin á næsta leyti og allt brjálað að gera í skólanum og vinnunni. Þetta fer samt allt að róast... eða hvað?..

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað miðvikud. 29. nóvember 2006 - 02:03



Það fer ekki á milli mála. Ég lærði mjög mikið fyrir Uppeldisfræðiprófið sem var í morgun. Ég þurfti að ná 8 eða hærra á prófinu svo ég myndi ná símatinu í áfanganum og fengi að sleppa við lokapróf, og ég get svo svarið það að ég held ég hafi náð þessu. Ég er ekki kominn með útkomuna úr prófinu en mér gekk svo fáránlega vel. Ég gat ekki hætt að skrifa á því. Þannig það fer ekki á milli mála að lærdómur skilar velgengni og velgengni skilar ánægju. ..

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað mánud. 27. nóvember 2006 - 18:29



Jæja, ætli það sé ekki kominn tími á smá blogg? ..

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað sunnud. 26. nóvember 2006 - 23:15



Þetta var einn venjulegasti dagur í heiminum. Það var ekkert gert nema að mæta eldsnemma í skólann og fór svo beint að vinna. Ég náði ekki einu sinni að fá mér neitt að borða hérna heima áður en ég fór í vinnuna, þannig ég stoppaði bara í sjoppu á leiðinni og fékk mér samloku. Svo var ég bara að koma heim núna og er að fara að sofa. Það er nú ekki meira en þetta. Ég kem með eitthvað djúsí seinna.
Athugasemdir
Skrifað fimmtud. 23. nóvember 2006 - 00:40



Jæja, í dag skellti ég mér bara í skólann. Ég skildi bílinn eftir uppi í skóla hérna rétt fyrir ofan mig í gærnótt út af því að ég gat ekki komist upp brekkuna í götunni minni, og þ.a.l. hefði ég mætt of seint í skólann í dag...

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað þriðjud. 21. nóvember 2006 - 23:52



Í kvöld fór ég bara í bíó með Siggu. Við ætluðum að fara á James Bond með Gumma og Jökli en Gummi hætti við og Jökull komst ekki fyrr en kl 11, sem var of seint...

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað mánud. 20. nóvember 2006 - 03:52



Jæja, þá er helgin liðin... eða svona næstum því...

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað sunnud. 19. nóvember 2006 - 11:10



Hvað er um að vera? Er ég orðinn svona latur? Er svona lítið að gerast? Er svona mikið að gera hjá mér í skólanum og vinnunni? Það veit ég ekki. Ég ætlaði að skrifa eitthvað en það er bara ekkert búið að gerast, þótt ótrúlegt sé!..

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað fimmtud. 16. nóvember 2006 - 01:33



Jæja, ætli maður skrifi ekki smá um laugardaginn. Það segja allir sem lesa þetta blogg eitthvað af viti að í hvert skipti sem þau lesi helgarbloggin lesa þau alltaf um eitthvað drama eða vesen. Ég var að gera mér grein fyrir því að það er rétt, þar sem núna um helgina var eitt slíkt. Þarf maður að sprauta þessa vini manns með róandi eða? ..

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað mánud. 13. nóvember 2006 - 03:48



Fleiri færslur:
Eldri færslur!