Jæja, þá fer 2006 að renna út og við tekur 2007. Ég hef verið afar latur við að blogga undanfarna daga. Ekki veit ég af hverju. En ég er allavega staðráðinn í því að drekka aldrei aftur kvöldið fyrir gamlárskvöld, þar sem núna er ég ógeðslega þunnur heima og er engan veginn að meika að drekka í kvöld. Ég ætla ekki að hafa þetta langt, ég bara vildi deila þessu með ykkur. Ég sé ykkur svo hress og kát á árinu 2007. Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir þau liðnu!
Athugasemdir
Skrifað sunnud. 31. desember 2006 - 21:06



Jæja, þá ætla ég að koma með smá jólablogg...

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað fimmtud. 28. desember 2006 - 04:07



Ég vil bara óska ykkur öllum gleðilegra jóla og vona að þið eigið eftir að hafa það gott um jólin.
Athugasemdir
Skrifað sunnud. 24. desember 2006 - 19:04



Dagurinn í dag var ágætur. Ég vaknaði á slaginu 20 mín yfir 3 og dreif í því að taka mig til. Ég byrja oftast klukkutíma fyrir vinnu að taka mig til svo nái að mæta á réttum tíma, en ég svaf aðeins yfir mig...

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað fimmtud. 21. desember 2006 - 02:46



Jæja já, er ekki kominn tími á smá blogg? Ég var búinn að skrifa um bæði fimmtudag og föstudag þegar ég rek mig í einhvern helvítis bakktakka á nýja fína lyklaborðinu mínu og allt þurrkaðist út. Það er nefnilega ágætur vani að skrifa allt í Notepad fyrst og færa svo yfir...

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað miðvikud. 20. desember 2006 - 02:58



Það eru komnir 6 dagar síðan ég bloggaði eða 1/5 úr mánuði. Ég ætla að gera eitthvað í þessu. Ég er að vísu að fara að vinna núna en ég lofa ykkur hér með bloggi í kvöld strax eftir vinnu!
Athugasemdir
Skrifað þriðjud. 19. desember 2006 - 15:14



Ég vil bara byrja á því að taka fram að ég á afmæli í dag. Ég er búinn að fá símtal frá mörgum en ástæðan fyrir því af hverju ég hef ekki svarað neinum af þeim er sú að ég var sofandi. En takk samt fyrir afmæliskveðjurnar og símtölin! ..

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað miðvikud. 13. desember 2006 - 18:45



Jæja, ég er rétt að komast í blogg gírinn aftur. Tók mér smá pásu á meðan ég var að læra undir þessi helvítis próf en ég ætla nú aðeins að skrifa núna. Ég skrifa samt örugglega ekkert á morgun, þar sem ég er að fara að læra undir síðasta prófið mitt og er það Heimspeki. Úff!..

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað mánud. 11. desember 2006 - 02:24



Eins og titillinn segir þá er allt of langt síðan ég bloggaði síðast. Undanfarna daga hefur maður bara verið að læra undir próf og svona. Maður hefur ekki neinn tíma til að skrifa einhverja vitleysu á netið...

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað laugard. 9. desember 2006 - 19:23



Ég verð að afsaka bloggleysið mitt en svo virðist sem að Gummi hafi fengið alla bloggkrafta mína, þar sem hann hættir ekki að blogga en ég... er dauður...

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað mánud. 4. desember 2006 - 18:07



Fleiri færslur:
Eldri færslur!