Ég satt að segja veit ekki alveg hvað er um að vera hjá mér. Ég vaknaði í morgun nokkuð sprækur eins og vanalega og dreif mig í skólann. Svo eftir smá stund í skólanum fór mig að svima og varð svona eins og þegar maður er sjóveikur. Mér varð samt ekki flögurt eða neitt svoleiðis, en mér leið eins og það væri að líða yfir mig!..

Lesa meira
Athugasemdir (8)
Skrifað fimmtud. 26. apríl 2007 - 23:12



Hvað er málið með þessa skólastjórn að setja fram að það sé bannað að hafa hlutapróf í síðustu vikunni fyrir próf, en samt gera kennararnir það óspart? Svo græðir maður ekkert á því að minna þá á þetta, því þeir segja þetta bara vera almenn tillitsemi en ekki skráð regla. Ég skil ekki svona vitleysu. Eru kennarar þá ekki bara að gefa það upp að þeir sýni nemendum enga tillitsemi? Voru ekki einhverjar auglýsingar frá Landsbankanum eða einhverjum sem snéru út á kjörorðin: „Sýnum nemendum tillitsemi“. Mig minnir það nefnilega. Hræsnarar!
Athugasemdir (2)
Skrifað fimmtud. 26. apríl 2007 - 00:32



Dagurinn í dag var bara ágætur, þrátt fyrir miklu þreytu. Ég fór í nokkur próf sem ég var ekki búinn að læra allt of vel undir, en ég held ég hafi bara staðið mig ágætlega á þeim. Ég fór í munnlegt dönskupróf sem mér gekk víst bara frábærlega í, þar sem dönskukennarinn minn hrósaði mér. Ég er samt með norska hreiminn enn í mér þannig ég skil ekki hvað var svona frábært við þetta...

Lesa meira
Athugasemdir (1)
Skrifað miðvikud. 25. apríl 2007 - 23:59



Vá hvað ég er orðinn þreyttur á þessu trúarbulli öllu saman. Ég þarf ekki einhverja bæklinga eða vitnanir upp úr Biblíunni til þess að sannfærast, þar sem ég hef áður verið sannfærður...

Lesa meira
Athugasemdir (4)
Skrifað miðvikud. 25. apríl 2007 - 09:23



Ég var að horfa á Silfur Egils og varð vitni að smá ríg milli Sóleyjar Tómasdóttur, ritara Vinstri Grænna, og Agnesar Bragadóttur, blaðamanni hjá Morgunblaðinu. Mér stökk smá bros við það að sjá þetta...

Lesa meira
Athugasemdir (5)
Skrifað þriðjud. 24. apríl 2007 - 20:38



Það hefur ekki komið blogg hérna inn lengi eða alveg síðan söngkeppnin var, sem er ekki nógu gott. Það mætti halda að ég væri giftur. Það heitasta í dag í vinahópnum er að segja að aðrir innan hópsins séu giftir út af því að þeir eru komnir með konu/kærustu/dúllufélaga upp á arminn og sleppa þ.a.l. djammi, fara snemma af djamminu, blogga ekki lengi, láta ekki heyra í sér, o.s.frv. ..

Lesa meira
Athugasemdir (5)
Skrifað mánud. 23. apríl 2007 - 02:25



Eins og flestir vita fórum við Helgi til Akureyrar um helgina síðustu og kepptum í Söngkeppni Framhaldsskólanna fyrir hönd Borgarholtsskóla með lagið Agndofa, sem er íslensk þýðing af laginu Lonestar - Amazed. Við unnum ekki en orðrómurinn er að við höfum lent í 4. sæti. Ég veit ekki hvert sannleiksgildið er í því og skiptir það heldur ekki neinu máli. Við fórum bara til þess að hafa gaman og tókst okkur það...

Lesa meira
Athugasemdir (17)
Skrifað þriðjud. 17. apríl 2007 - 00:10



Ég er þá kominn heim frá Akureyri. Ég ætla nú ekki að skrifa neitt um ferðina núna þar sem ég er að fara að sofa en gerið ykkur undirbúin fyrir heillanga ferðasögu á morgun. En annars bara til hamingju með afmælið, Jökull. Orðinn stór strákur (22 ára gamall).
Athugasemdir (7)
Skrifað sunnud. 15. apríl 2007 - 23:07



Jæja þá er ég að fara á Akureyri eftir sirka eina klukkustund. Við Helgi tökum flugið norður og erum bara kátir á því. Munið svo að horfa á okkur í sjónvarpinu. Við erum 12. atriðið.
Athugasemdir (27)
Skrifað föstud. 13. apríl 2007 - 14:15



Í dag var fyrsti skóladagurinn eftir þetta æðislega páskafrí. Þetta var alveg frábær dagur og verður enn betri í kvöld þegar við Helgi fáum að æfa flutning okkar uppi í skóla í kerfinu inni í sal...

Lesa meira
Athugasemdir (2)
Skrifað miðvikud. 11. apríl 2007 - 19:29



Fleiri færslur:
Eldri færslur!