Dagurinn hjá mér var bara ágætur. Vinnan var reyndar ógeðslega lengi að líða, þar sem ég var allan daginn að sópa allt svæðið með einhverjum hálf-sjálfvirkum sóp. Það var ekki lítið hvað ég var drullugur eftir á, þar sem það var svo mikið ryk sem fór á mig alltaf þegar ég var að tæma draslið...

Lesa meira
Athugasemdir (4)
Skrifað fimmtud. 31. maí 2007 - 00:31



Það eru margir búnir að vera að ýta á mig að fara að blogga, þannig ég ákvað bara að drífa í því að skrifa eitt stykki blogg í einum grænum. Svona núna þegar ég skrifa þetta veit ég ekki alveg hvar ég á að byrja, en þar sem ég er þekktur fyrir að láta allt flakka á þessum blessaða bloggi þá held ég bara því striki...

Lesa meira
Athugasemdir (14)
Skrifað þriðjud. 29. maí 2007 - 02:24



Annar dagurinn í nýju vinnunni liðinn og ég get nú ekki sagt að það hafi eitthvað batnað. Það var nú ekkert slæmt fyrsta daginn en það skánaði nú ekkert í dag, þar sem ég gerði nú alveg tvö mistök, en batnandi manni er best að lifa - right? ..

Lesa meira
Athugasemdir (6)
Skrifað miðvikud. 23. maí 2007 - 00:36



Jæja, fyrsti vinnudagurinn minn í Húsasmiðjunni var í dag. Ég fékk að vera hjá Helga og Andra í portinu og var Helgi bara í allan dag að kenna mér að afgreiða timbur. Þetta var bara ágætt, þrátt fyrir að hafa sofið ekki neitt síðustu nótt út af snúnum sólahring og stressi. Svo eftir vinnu skellti ég mér í ræktina, svo heim að borða og svo til Jökuls að horfa á Haggard. En núna ætla ég að fara að sofa, þar sem ég er að látast úr þreytu!
Athugasemdir (1)
Skrifað mánud. 21. maí 2007 - 23:32



Ég kíkti á tölvuLAN hjá Oddi bróðir Grétars þessa helgi. Það voru einhverjir 20 gaurar þar að LAN'a og vorum við Jökull og Grétar einir af þeim...

Lesa meira
Athugasemdir (1)
Skrifað mánud. 21. maí 2007 - 02:59



Ég fór og sótti einkunnirnar áðan og ég get stolltur sagt að ég hafi náð öllu - nema íþróttum, en það er bara út af því að ég er í einkaþjálfun og er skítsama um einhverja helvítis skólaleikfimi. Hahaha, einn geðveikt bitur. ..

Lesa meira
Athugasemdir (5)
Skrifað föstud. 18. maí 2007 - 15:03



Ég bauð strákunum heim í gær, þar sem við ákváðum að drekka bjór og horfa á Beerfest. Þeir sem komu voru: Gummi, Grétar, Jökull, Halli, Helgi, Andri, Palli og Ómar. Eins og ég sagði sátum við bara, sötruðum bjór og horfðum á sjónvarpið...

Lesa meira
Athugasemdir (8)
Skrifað fimmtud. 17. maí 2007 - 23:59



Jæja, Katrín vinkona mín er orðin hundleið á því að ég skrifi bara blogg um helgardjömmin mín, sem er ekki alveg rétt. En frábrugðið frá henni Katrínu, vinn ég ekki við tölvur og er þess vegna ekki alltaf fyrir framan þær. ..

Lesa meira
Athugasemdir (3)
Skrifað miðvikud. 16. maí 2007 - 20:24



Jæja löng helgi að baki. Ég djammaði á föstudeginum en var svo bara að vinna á laugardaginn. Ég var að koma heim úr vinnunni núna áðan og ákvað því að skella mér bara í að blogga...

Lesa meira
Athugasemdir (10)
Skrifað sunnud. 13. maí 2007 - 10:42



Ég er búinn að vera að reyna að læra á fullu, en þar sem ég datt niður í bloggpyttinn, verð ég að segja ykkur aðeins frá myndinni sem ég sá um daginn og stúdíótímanum sem ég fór í nú í gær...

Lesa meira
Athugasemdir (3)
Skrifað fimmtud. 10. maí 2007 - 14:19



Fleiri færslur:
Eldri færslur!