Ég sat í stólnum hjá mömmu, þar sem hún var að klippa mig og strípa mig, og á meðan sagði hún mér fyndna sögu frá því að ég og Grétar vorum litlir. Þessi saga er enginn illur ásetningur á Grétar - heldur bara fyndin saga...

Lesa meira
Athugasemdir (3)
Skrifað laugard. 30. júní 2007 - 20:01



Ég lenti í frekar leiðinlegu óhappi í dag. Ég var að taka upp búnt á lyftaranum mínum í dag þegar kúnni ætlaði að troða sér fyrir aftan mig. Ég lít við og sé kúnnann vera að bíða, þannig ég kalla til hans: „Kemstu?“, og hann hrópar til baka: „Nei!“. Ég ákveð þá að færa mig og hleypa honum. Ég byrja að bakka og þá er hann allt í einu kominn fyrir aftan mig og ég nuddast aðeins í hann...

Lesa meira
Athugasemdir (5)
Skrifað laugard. 30. júní 2007 - 00:18



Ég, Ella systir og Gummi kærastinn hennar fórum í kvöld upp í MEST til að láta arkitekt teikna garðinn við húsið okkar. Það fyndna var að ég mætti beint úr vinnunni... í Húsasmiðju peysunni minni. Ella og Gummi þóttust ekki þekkja mig á meðan við löbbuðum í gegnum verslunina. En fyrir ykkur sem ekki vitið, þá er MEST byggingavöruverslun - líkt og Húsasmiðjan.
Athugasemdir (7)
Skrifað fimmtud. 28. júní 2007 - 00:08



Hafiði tekið eftir því þegar einhver nennir ekki að útskýra hvað hann er að gera nákvæmlega („ég er að...“), að hann segi bara nafnorðið og bæti „ast“ fyrir aftan? T.d. tölvast, msn'ast, sms'ast, o.s.frv. T.d. þegar ég er að taka fram að ég sé bara einn og hafi ekkert að gera, segi ég oft: „Ég er bara að lónerast“. Svo þegar ég er að gera eitthvað en nenni ekki að segja manneskjunni hvað ég er að gera, eða þá að henni komi það ekki við, segi ég: „Ég er bara að rónast“. Á þetta bara við um mig eða?
Athugasemdir (4)
Skrifað miðvikud. 27. júní 2007 - 01:07



Það hafa verið miklar pælingar undanfarið um það hvaða tómatsósa sé eiginlega best. Sumir segja Hunt's á meðan aðrir segja Libby's, Heinz, Ora eða Vals...

Lesa meira
Athugasemdir (9)
Skrifað þriðjud. 26. júní 2007 - 00:20



Eins og Gummi segir þá er ég orðinn einhverfur, þar sem ég fer alltaf bara einn niður í bæ. En allavega, þá skellti ég mér í smá partý heima hjá Guðmanni og svo bara niður í bæ. Grétar var svo góður að sækja mig heim og skutla mér í partýið og niður í bæ, þar sem hann var edrú. Takk kærlega fyrir það, Grétar minn. ..

Lesa meira
Athugasemdir (13)
Skrifað mánud. 25. júní 2007 - 01:58



Eftir lyftaraprófið í gær fékk ég stuttu seinna að vita það að ég hefði náð, þannig ég fór bara niður í Húsasmiðju og tók nokkrar pantanir saman á lyftara. Það var geðveikt gaman. ..

Lesa meira
Athugasemdir (6)
Skrifað laugard. 23. júní 2007 - 23:14



Ég var að fá nú rétt í þessu annað keðjubréf - og það frá Tom á MySpace...

Lesa meira
Athugasemdir (5)
Skrifað föstud. 22. júní 2007 - 21:38



Djöfull fara svona keðjubréf í taugarnar á mér. Ég fæ örsjaldan svona í tölvupósti en á MySpace fæ ég þetta daglega...

Lesa meira
Athugasemdir (4)
Skrifað föstud. 22. júní 2007 - 01:20



Á leiðinni heim úr vinnunni stoppaði ég við í lúgunni uppi í Olís Gullinbrú, þar sem ég var að deyja úr þorsta...

Lesa meira
Athugasemdir (5)
Skrifað fimmtud. 21. júní 2007 - 01:05



Fleiri færslur:
Eldri færslur!