Ég fór inn á heimabankann minn núna áðan til að fylla á inneignina á símanum mínum, þegar ég tók eftir ráðstöfuninni á debetkortinu mínu. Ég kíkti á reikningsyfirlitið og tók þá eftir svolitlu einkennilegu...

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað fimmtud. 27. september 2007 - 03:01



Ég verð nú bara að lýsa óánægju minni með Digital Ísland. Ég lagðist upp í rúm í gær og ætlaði að horfa á Collateral á Stöð2 Bíó, en þegar það voru svona 20 mínútur eftir af myndinni datt Digital Ísland út sem varð til þess að ég gat ekki klárað að horfa, og maður fyrst orðinn spenntur! En nú rétt í þessu gerðist þetta aftur, þannig svo virðist sem að í þau fáu skipti sem maður horfir á sjónvarpið þá þarf eitthvað að klikka. Er þetta ásættanlegt?
Athugasemdir
Skrifað miðvikud. 26. september 2007 - 14:18



Athugasemdir
Skrifað miðvikud. 26. september 2007 - 02:39



Í kvöld fór ég með Huldu og Erlu á Sólon, en við Hulda höfðum ekki séð Erlu í meira en ár. Við fengum okkur að borða og spjölluðum svo um allt milli himins og jarðar. Frábært kvöld, en það sem skemmdi það var það að ég og Hulda fengum bæði sekt fyrir að leggja ólöglega. Ég vissi ekki að stöðumælaverðir væru að vinna kl 9 á kvöldin?
Athugasemdir
Skrifað miðvikud. 26. september 2007 - 01:23



Ég var nú bara að vinna alla helgina, en þar sem ég var að skipta um helgar í vinnunni og er þ.a.l. að vinna næstu helgi, vann ég bara stuttar vaktir núna um helgina eða frá 5-9...

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað mánud. 24. september 2007 - 03:04



Það mætti heldur betur fara að segja það. Ég fann það í morgun strax og ég fór út að hitastigið jaðraði við 0 stigin, og varð ég alveg sannfærður þegar ég sá að bíllinn minn var gaddfreðinn. Ég mætti m.a.s. of seint í tíma út af því að ég þurfti bæði að skafa af bílnum og hita læsinguna, þar sem hún var gjörsamlega frosin. Ég fer að fara að nota fjarstartið, ég elska það.
Athugasemdir
Skrifað föstud. 21. september 2007 - 11:01



Jæja, systir mín fékk mig til að koma í einn prufutíma í samkvæmisdansi núna áðan. Við vorum jú á fullu í dansinum fyrir nokkrum árum og urðum m.a.s. Íslandsmeistarar í eitt skiptið. En þetta var ofsalega gaman, þetta var rosalega fljótt að rifjast upp. Spurning um að byrja aftur, þar sem þetta er rosalega gaman!
Athugasemdir
Skrifað fimmtud. 20. september 2007 - 23:19



Ég var úti í Olís áðan og sá þar gamlan útigangslegan mann vera að týna flöskur upp úr flöskutunnunum. Ég fór að spá hvort þetta væri ekki bara hreinn og beinn þjófnaður, þar sem hann hagnast í staðinn fyrir Olís. Hvað segið þið?
Athugasemdir
Skrifað fimmtud. 20. september 2007 - 16:46



Ég skrapp í bíó um daginn á myndina Mr. Brooks.
Skrifað miðvikud. 19. september 2007 - 17:20



Mig dreymdi um daginn einn yndislegasta og raunverulegasta draum sem hugsanlega er hægt að dreyma. Mig dreymdi um Britney Spears og að við værum saman. Ég kynntist henni mjög náið og á allt annan hátt en ég hafði talið hana vera. Þetta er kannski svolítið væminn draumur en ég er ekki vanur að dreyma svona drauma. En ég sakna þín, Britney, endilega hafðu samband!
Athugasemdir
Skrifað þriðjud. 18. september 2007 - 23:16



Fleiri færslur:
Eldri færslur!