Eins og flestir vita var ræðukeppnin umtalaða, Morfís, um daginn, og keppti Borgarholtsskóli, skólinn minn, við Fjölbrautaskólann í Breiðholti. En það er ekki aðal málið, heldur hvað gerðist í þessari ræðukeppni...

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað miðvikud. 30. janúar 2008 - 20:38



Á næsta ári mun hlýnun jarðar staðna og ísöld taka við eftir nokkra áratugi. Þetta kemur fram á vef Vísis. En af hverju er þá svona ógeðslega kalt núna? Ég hélt að puttarnir mínir myndu detta af núna áðan.
Athugasemdir
Skrifað miðvikud. 30. janúar 2008 - 13:45



Fyrir tveim dögum lá ég andvaka heila nótt og fór svo bara beint í skólann. Svo seinna um kvöldið ætlaði ég að fara að sofa, en ég náði ekki að sofna! Það var ekki fyrr en ég fór fram og fékk mér einn bjór sem ég náði að sofna. Djöfull er óþægilegt að vera dauðþreyttur en ná samt ekki að sofna!
Athugasemdir
Skrifað þriðjud. 29. janúar 2008 - 23:03



Þessi er ekki alveg með á nótunum.
Athugasemdir
Skrifað þriðjud. 29. janúar 2008 - 12:07



Er ég einn um það að finnast KKK ("Kátir Krakkar í Kyrruviku") vera óviðeigandi skammstöfun á nafni þemaviku fyrir barnamessu?
Athugasemdir
Skrifað mánud. 28. janúar 2008 - 17:51



Við vorum búin að plana að byrja að drekka heima hjá Grétari en fara svo niður í bæ, þar sem við ætluðum að hitta Gumma og vonandi eitthvað af strákunum. Við byrjuðum, skv. plani, heima hjá Grétari. Ég, Grétar, Jökull og Solla vorum bara þarna fjögur að drekka og spjalla. Það var bara helvíti fínt - svona til að byrja með...

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað mánud. 28. janúar 2008 - 13:46



Gærkvöldið byrjaði bara ágætlega. Ég fór yfir til Grétars þar sem við slöppuðum bara af og drukkum bjór...

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað laugard. 26. janúar 2008 - 21:41



Í morgun var snjóbylur 3000 þannig ég var nokkuð öruggur um að skólinn myndi falla niður...

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað laugard. 26. janúar 2008 - 00:17



Alfreð Gíslason, þjálfari íslenska landsliðsins í handknattleik, er víst hættur sem þjálfari liðsins. Ætli frammistaða strákanna á EM hafi eitthvað með þessa ákvörðun hans að gera? Nánar um þetta hér.
Athugasemdir
Skrifað fimmtud. 24. janúar 2008 - 17:45



Í kvöld byrjaði ég aftur í samkvæmisdansi eftir jólafrí. Ég og Ella systir mín mættum þarna galvösk klukkan 9 og sáum helling af pörum á okkar aldri vera að dansa, þannig ég hélt að þetta yrði nýi hópurinn okkar. Stuttu seinna stoppaði músíkin, ungu pörin kvöddu dansgolfið og fólk yfir fertugt æddi inn á golf. Er ég virkilega orðinn svona gamall?
Athugasemdir
Skrifað fimmtud. 24. janúar 2008 - 02:41



Fleiri færslur:
Eldri færslur!