Ég rakst á YouTube síðuna hans Palla og varð bara að sýna ykkur nýjasta myndbandið hans þar sem hann sýnir nýjan dans sem hann samdi sjálfur...

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað fimmtud. 30. október 2008 - 20:24



Mér brá heldur betur í brún um daginn þegar ég skellti mér í bíó í Sambíóin með Jökli og borgaði einungis 500 kr. fyrir miðann. Ég kynnti mér málið aðeins og komst að því að þeir eru að reyna að fá fólk til að fara meira í bíó á þriðjudögum. Þá vitiði það, 500 kr. í Sambíóin á þriðjudögum!
Athugasemdir
Skrifað fimmtud. 30. október 2008 - 15:58



Íslendingar eru alveg að brillera í sköpunarvirkni þessa dagana. Ég rakst á mjög sniðuga síðu áðan en hún birtir verðsamanburð á ýmsum hlutum sem maður notar í hinu daglega lífi. Þ.á.m. hvar maður fær ódýrast í bíó, hvar ódýrasta bensínið er, hvar ódýrast er að láta skipta um dekk, o.s.frv. Ég nota Vaktina mikið en það er bara fyrir tölvuhluti. Þetta er hins vegar fyrir ýmsa hluti sem maður þarf dags daglega. Þetta er algjört brill! Endilega kíkið á þetta!
Athugasemdir
Skrifað fimmtud. 30. október 2008 - 13:10



Síminn hefur ákveðið að lækka takmörkun á erlendu gagnamagni, sem leyfilegt er að sækja á mánuði, um 50% eða úr 80 GB í 40 GB...

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað miðvikud. 29. október 2008 - 15:01



Ég rakst á skemmtilega síðu áðan sem sýnir hvernig færi í forsetakosningum Bandaríkjanna ef heimurinn fengi að kjósa. Obama er með vægast sagt gott forskot á McCain. En það sem kemur mér mest á óvart er þessi mikli stuðningur Íraka við McCain, heil 46%. Maðurinn sem er með mesta reynslu sína byggða út frá hernaði og hefur sagst ætla að íhuga það í fyrsta lagi árið 2013 hvort hann vilji ljúka þessu stríði. Óskiljanlegt!
Athugasemdir
Skrifað miðvikud. 29. október 2008 - 13:40



Ég get bara því miður ekki með nokkru móti vorkennt manneskju sem geymir ævistarf sitt inni á tölvunni sinni, ásamt myndum af börnunum sínum síðan þau fæddust - þegar hún tekur ekki afrit af gögnunum. Þetta er alveg með því vitlausasta sem ég hef lesið.
Athugasemdir
Skrifað sunnud. 26. október 2008 - 16:44



Mamma lenti í smá óhappi áðan. Ég að sjálfsögðu náði í myndavélina og tók mynd áður en ég byrjaði að hjálpa. Hahaha...

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað föstud. 24. október 2008 - 16:30



Hver kannast ekki við skemmtilegu kómísku teikningarnar í Morgunblaðinu? Þær munu því miður ekki líta aftur dagsins ljós, þar sem Sigmund Jóhannsson Baldvinsen, höfundur teikninganna, hefur verið vikið úr starfi fyrirvaralaust eftir 44 ár...

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað miðvikud. 22. október 2008 - 21:35



Í DAG ER HINN ALÞJÓÐLEGI HÁSTAFADAGUR ÞANNIG EF ÞIÐ VILJIÐ LEGGJA ATHUGASEMD YKKAR VIÐ ÞETTA INNLEGG, GERIÐ ÞAÐ ÞÁ Í HÁSTÖFUM!
Athugasemdir
Skrifað miðvikud. 22. október 2008 - 12:38



Hér er einn góður sem stjórnmálafræðikennarinn minn sýndi okkur í dag...

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað þriðjud. 21. október 2008 - 13:05



Fleiri færslur:
Eldri færslur!