Um daginn var ég í sögutíma og við áttum að horfa á einhverja heimildarmynd um Nasista. Ég sat svolítið framarlega í miðri stofunni og var með olnbogana á borðinu með hausinn í hvíld á höndunum. Svo stuttu seinna dottaði ég en hrökk svo rosalega við að eflaust allir tóku eftir því. Djöfull skammaðist ég mín og fór eitthvað að ræskja mig til þess að afsaka mig á einhvern skrítinn og óskiljanlegan hátt.
Athugasemdir (4)
Skrifað laugard. 29. mars 2008 - 03:01



Stóra Istorrent málið, sem fór í gang 19. nóvember í fyrra, hefur verið vísað frá Héraðsdómi og var SMÁÍS gert að greiða Istorrent 500.000 í málskostnað, en lögbanninu hefur ekki enn verið aflétt. Nú er bara spurningin um hvort SMÁÍS áfrýji til Hæstaréttar eða gefist bara hreinlega upp. Dóminn í heild sinni má finna hér.
Athugasemdir (1)
Skrifað fimmtud. 27. mars 2008 - 19:28



Það er eitthvað við þessa þætti sem fær mig til að horfa á þá. Ég horfi nú ekki alveg frá byrjun seríunnar til enda, heldur horfi ég á fyrstu þættina og svo síðustu. Ég sleppi flest öllu í miðjunni, þar sem stóri niðurskurðurinn finnst mér vera leiðinlegastur. Svo þegar einn dettur út í hverjum þætti byrja ég að horfa aftur...

Lesa meira
Athugasemdir (1)
Skrifað fimmtud. 27. mars 2008 - 02:38



Ég horfði á mjög forvitnilegt myndband sem sýnir muninn á McDonalds og venjulegum mat. Ég mæli hiklaust með þessu. Þetta gæti verið ein af ástæðum fyrir vandamálunum í dag tengdum offitu.
Athugasemdir (5)
Skrifað þriðjud. 25. mars 2008 - 20:17



Þetta páskafrí er búið að vera svolítið frábrugðið öðrum, þar sem ég er gjörsamlega búinn að liggja í áfenginu yfir þessa páska, sem getur ekki verið hollt, hvorki fyrir líkama né sál...

Lesa meira
Athugasemdir (4)
Skrifað þriðjud. 25. mars 2008 - 00:14



Ég ætla aðeins að skrifa um það sem er búið að gerast frá og með miðvikudeginum...

Lesa meira
Athugasemdir (5)
Skrifað laugard. 22. mars 2008 - 22:58



Það er afar fátt sem er búið að gerast í mínu lífi þessa dagana. Alltaf það sama bara, skólinn, vinnan og djamm. Þetta er orðið allt of einhæft, maður þarf að fara að gera eitthvað annað...

Lesa meira
Athugasemdir (3)
Skrifað miðvikud. 19. mars 2008 - 04:10



Ég efast um að Umferðarstofu hafi dottið í hug að það væri hægt að mynda skemmtilegar setningar út frá nýju fastanúmerunum, svipað og með gaurinn sem fékk GA-Y00, strætóinn sem er með SA-F36 og þetta - sem er best...

Lesa meira
Athugasemdir (5)
Skrifað sunnud. 16. mars 2008 - 21:27



Þeir hafa ákveðið að breyta nöfnunum á sjónvarpsstöðvunum sínum og er tilgangurinn að hnitmiða og skerpa á ímynd og markaðsstarfi sjónvarpsstöðvanna. Breytingarnar eru eftirfarandi...

Lesa meira
Athugasemdir (4)
Skrifað fimmtud. 13. mars 2008 - 19:19



En spennandi, ég þarf að gera heila 5 bls heimildaritgerð um sögu bílsins fyrir morgundaginn. Það er samt alfarið mér að kenna að draga þetta svona á langinn. Shame on me.
Athugasemdir (2)
Skrifað fimmtud. 13. mars 2008 - 17:19



Fleiri færslur:
Eldri færslur!