Jæja, þá er skólinn búinn. Núna eru bara prófin eftir og þá er ég kominn í "sumarfrí"...

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað miðvikud. 30. apríl 2008 - 16:57



Ég fór í gær í SKORRA til Hlyns vinar míns og bað hann um að athuga geyminn á bílnum, þar sem undanfarna daga hefur hann verið mjög leiðinlegur...

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað þriðjud. 29. apríl 2008 - 16:05



Ég fór í gær í Borgarleikhúsið til að sjá Maju frænku mína dansa hip-hop á nemendasýningu DWC (Dansstúdíó World Class). Ég verð nú bara að segja að hún kom mér verulega á óvart og var þetta virkilega flott hjá henni og öllum danshópnum hennar. En eigum við eitthvað að ræða gellurnar sem voru þarna? Sajiiii...
Athugasemdir
Skrifað þriðjud. 29. apríl 2008 - 12:50



Skeljungur voru að enda við að hækka eldsneytið hjá sér og er líterinn af bensíni nú í 152,6 kr. og líterinn af díseli í 165,5 kr. Ég var byrjaður að hafa verulegar áhyggjur, þar sem það hefur ekki komið hækkun í allnokkra daga og heimsmarkaðsverðið hefur enn ekkert hækkað. Kærar þakkir, Skeljungur, fyrir að opna augu mín og sanna að ekkert óréttlæti sé til.
Athugasemdir
Skrifað þriðjud. 29. apríl 2008 - 03:06



Nú rétt í þessu var ég að fá úr efnafræðiprófinu sem ég tók um daginn. Ég fékk 7 á því, og þar sem ég fékk 5,7 á eðlisfræðiprófinu, sem ég tók fyrir svolitlu síðan, fæ ég að sleppa við lokapróf í þessum áfanga. Djöfull er ég ánægður!
Athugasemdir
Skrifað mánud. 28. apríl 2008 - 09:35



Þið sem horfðuð á mótmælin um daginn á Suðurlandsvegi hafið örugglega orðið vitni af GAS gríninu, en hér er komið splunkunýtt remix með GAS-manninum ógurlega! Ég mæli feitt með þessu.
Athugasemdir
Skrifað laugard. 26. apríl 2008 - 20:41



Þessi helgi verður bara róleg, þar sem þetta er vinnuhelgin mín. Ég var að vinna í gær og það var því miður ekkert að gera, en vonandi verður meira að gera í kvöld...

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað laugard. 26. apríl 2008 - 20:17



Það er víst allt að verða vitlaust eftir þessi mótmæli atvinnubílstjóra á Suðurlandsvegi í gær. Þetta áttu nú bara að vera friðsamleg mótmæli, svipað og öll mótmæli sem þeir hafa átt upptök að, en þetta endaði með ósköpum og voru fjölmargar löggur komnar með hjálma og óeirðarskildi til að stöðva brjálaðan almúginn, sem hafði bæst við í hóp atvinnubílstjóra...

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað fimmtud. 24. apríl 2008 - 23:23



Í dag mótmæltu atvinnubílstjórarnir á Suðurlandsvegi og stoppuðu m.a. umferð með vörubílum sínum. Sérsveit lögreglunnar kom á staðinn og reyndi að leysa mótmælin upp, en án árangurs...

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað miðvikud. 23. apríl 2008 - 16:16



Ég vil bara óska Hemma frænda og Röggu kærustunni hans innilega til hamingju með nýfædda stúlkubarnið, sem fæddist í dag, sama dag og Ella frænka mín fæddist. Það er ekki amalegt fyrir hana að þekkja engil sem er fæddur sama dag og hún. Enn og aftur, til hamingju!
Athugasemdir
Skrifað þriðjud. 22. apríl 2008 - 23:59



Fleiri færslur:
Eldri færslur!