Mér finnst virkilega lélegt af 365 og Stöð2 að sjá ekki sóma sinn í því að sýna ekki þættina Traveler, sem hættu fyrir ári síðan í framleiðslu. Serían er hálfkláruð og því mun Stöð2 skilja áhorfendur eftir með sárt ennið og margar spurningar í huganum eftir síðasta þáttinn. Alveg til háborinnar skammar!
Athugasemdir
Skrifað föstud. 30. maí 2008 - 01:15



Er þessi auglýsing ekki svolítið kunnugleg?
Athugasemdir
Skrifað föstud. 30. maí 2008 - 00:52



Þetta var svakalegur jarðskjálfti í dag. Hann mældist 6,1 á richter, en það hefur ekki mælst svona mikill skjálfti hér á landi síðan árið 2000 þegar hann mældist 6,6. Það skalf allt niðri í vinnu. Mögnuð upplifun!
Athugasemdir
Skrifað fimmtud. 29. maí 2008 - 23:54



Ég horfði á keppnina núna í ár og fannst mér Ísland standa sig mjög vel, og áttu þau svo sannarlega skilið að ná sæti á topp 5, en svona gengur víst lífið; eintóm samráð og klíkuskapur!..

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað mánud. 26. maí 2008 - 04:24



Helgin hjá mér var bara ágæt. Ég var bara að vinna alla helgina, en til að byrja með var ég svolítið vonsvikinn yfir því að djamma ekki á Eurovisionkvöldinu, en komst fljótt yfir það. Sixties voru að spila um helgina og verð ég nú bara að segja að það er mjög gaman að hlusta á þá. Fyrsta daginn var mjög lítið að gera en svo ágætt næsta dag, en ég kíkti aðeins niður í bæ eftir vinnu á laugardeginum, en það var búið að loka öllu þannig við kíktum aðeins á Tunglið og fórum svo bara heim fljótlega eftir það.
Athugasemdir
Skrifað mánud. 26. maí 2008 - 03:51



Það er ekki slæmt að vera komin upp úr undankeppninni og vera á leiðinni í aðalkeppnina á laugardaginn. Verst er að ég er að vinna þá, þar sem ég er gjarn á að djamma þegar Eurovision er. En ef Ísland lendir í topp 3 ætla ég að fá mér bjór eftir vinnu - ekki spurning!
Athugasemdir
Skrifað föstud. 23. maí 2008 - 01:45



Jæja, þá er maður búinn að horfa á úrslitaþáttinn af American Idol í beinni á Stöð 2 frá kl 11 í kvöld, en kl er langt gengin í 3. Þeir sem kepptu um fyrsta sætið voru þeir David Cook og David Archuleta. Satt að segja komu úrslitin mér EKKERT á óvart!..

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað fimmtud. 22. maí 2008 - 02:09



Jæja, þá er ég aftur kominn í Húsasmiðjuna. Fyrsti dagurinn á mánudaginn var fínn, en mér brá svolítið þegar mér var strax hent á lyftara og látinn taka pantanir, þar sem það var jú heilt ár síðan ég snerti lyftara síðast. En annars gengur allt vel, þó lífið sé voða einhæft eitthvað; Vakna, vinna, borða, tölvan, sofa...

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað miðvikud. 21. maí 2008 - 02:05



Mér var bent á þessa síðu núna í kvöld og verð nú bara að segja að þetta er sniðug hugmynd í anda Radio.Blog.Club, sem allir ættu að kannast við, en fyrir utan það er sú síða bara með tónlistina beint í æð, en Radio Ninja bæði með tónlistina og myndböndin. Bráðsniðugt og vona að þetta verði vinsælt fyrirbæri. Nafnið finnst mér hins vegar vera glatað.
Athugasemdir
Skrifað mánud. 19. maí 2008 - 02:46



Án efa besta auglýsingin frá Símanum til þessa. Jón Gnarr er snillingur, það er á tæru.
Athugasemdir
Skrifað sunnud. 18. maí 2008 - 23:30



Fleiri færslur:
Eldri færslur!