Solla bauð mér fyrir svolitlu síðan í sumarbústað rétt hjá Borgarnesi í tilefni af afmælinu sínu og að sjálfsögðu þáði ég boðið og skellti mér í gær strax eftir vinnu...

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað mánud. 30. júní 2008 - 01:30



Við strákarnir í vinnunni ákváðum að búa til smá veðmál út frá EM. Við skrifuðum allir sitthvor liðin niður á blað og fær sá heppni kassa frá öllum þegar úrslitin eru ljós. Hins vegar voru sumir óöruggir og ákváðu að herma eftir hinum og því eru að þessu sinni tveir sigurvegarar, þar sem Spánn eru Evrópumeistarar og það voru einmitt tveir sem völdu Spán. Ég valdi hins vegar Frakkland og datt þ.a.l. mjög fljótt út.
Athugasemdir
Skrifað sunnud. 29. júní 2008 - 22:04



Um daginn hringdi blaðamaður frá DV í mig út af þessu og sagðist ætla að skrifa grein um þetta í blaðið. Hann spurði mig nokkurra spurninga sem ég svaraði samviskusamlega. Eftir það sagðist hann senda ljósmyndara niður í vinnu til mín til að taka mynd af mér fyrir blaðið, sem hann og gerði. Tveim dögum síðar keypti ég blaðið og sá þetta. Þetta er barasta mjög vel skrifuð grein og bara nokkuð góð mynd af mér, og líka mun stærri en ég bjóst við. Ég er mjög sáttur.
Athugasemdir
Skrifað laugard. 28. júní 2008 - 00:01



Ég er vanur að fá svona sent í tölvupósti en bjóst satt að segja aldrei við því að fá þetta sent í símann minn...
Athugasemdir
Skrifað mánud. 23. júní 2008 - 01:35



Jæja, þá er aftur komin helgi. Það er ekki margt búið að gerast í lífi mínu til þessa, en það er kominn tími til að skrifa smávegis um það...

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað laugard. 21. júní 2008 - 20:52



Fyrirtækið Mozilla, sem framleiðir heimsfræga internet vafrann FireFox, hefur nú gefið út útgáfu 3 af þessum sívinsæla vafra, en hefur auk þess ákveðið að slá heimsmet Guinness sem mest sótti hugbúnaðurinn innan sólarhrings. Endilega styðjið gott málefni gegn tölvurisanum Microsoft með því að smella hér - og nælið ykkur í leiðinni í FireFox 3.
Athugasemdir
Skrifað miðvikud. 18. júní 2008 - 01:51



Í gær fórum við strákarnir í útilegu. Við fórum reyndar bara 3; ég, Grétar og Jökull. Staðurinn sem við fórum á var einkalóð rétt hjá Flúðum og því var ekki víst hvort við mættum vera þarna eða hvað...

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað sunnud. 15. júní 2008 - 20:50



Jæja, það er víst brjálað að gera hjá manni og voða lítill tími fyrir tölvuna, hvað þá bloggið. Ella systir mín á samt afmæli í dag og er skvísan orðin 24 ára gömul. Til hamingju með það! ..

Lesa meira
Athugasemdir
Skrifað fimmtud. 12. júní 2008 - 23:32



Nú í dag hækkaði Skeljungur bensínverðið hjá sér um 6-7 kr. Núna er lítrinn af bensíni á 179 kr. og lítrinn af dísel á 191,80 kr. Þetta er alveg hætt að vera fyndið. Og hvað í andskotanum hafa stjórnvöld gert hingað til, til að stemma stigum við þetta brjálæði? Ekki rassgat!
Athugasemdir
Skrifað mánud. 9. júní 2008 - 19:48



Mér finnst ekkert sérstaklega ráðlagt að íhuga að fara að leggja kolefnisskatta ofan á bensínverðið, nú þegar bensínverðið og verðbólgan eru í sögulegu hámarki. Ég festi þá endanlega kaup á rafmagnsbíl - ekki spurning!
Athugasemdir
Skrifað miðvikud. 4. júní 2008 - 00:25



Eldri færslur!