Ég bjó til Manga útgáfu af sjálfum mér á FaceYourManga.com. Sniðugt...

Lesa meira
Athugasemdir (7)
Skrifað miðvikud. 25. febrúar 2009 - 21:31



Hjalti góðvinur minn kom með tengil á myndband þar sem fjarmálakreppan er útskýrð í máli og myndum. Þetta er rosalega góð útskýring á þessu og mæli ég hiklaust með því að þeir sem hafa ekki hundsvit á því hvernig þetta virkar kíki á þetta. Hérna er myndbandið.
Athugasemdir (3)
Skrifað miðvikud. 25. febrúar 2009 - 16:43



Óskarsverðlaunahátíðin var sýnd beint í nótt og í heildina er ég bara nokkuð sáttur. Hægt er að sjá úrslitin hérna...

Lesa meira
Athugasemdir (0)
Skrifað mánud. 23. febrúar 2009 - 18:55



Ég var að horfa á How I Met Your Mother á plúsnum og svo komu íslenskar auglýsingar, en síðasta auglýsingin var auglýsing frá FullTiltPoker.com. Þetta kom mér svolítið á óvart, þar sem þetta var á íslenskri sjónvarpsrás, og síðast þegar ég vissi voru fjárhættuspil bönnuð á Íslandi og póker flokkaðist undir fjárhættuspil...

Lesa meira
Athugasemdir (5)
Skrifað þriðjud. 17. febrúar 2009 - 22:45



Síðustu helgi fór ég í Reykjanesið að vinna. Ég fer satt að segja afar sjaldan þangað vegna leti, en það var ágætt í þetta skipti...

Lesa meira
Athugasemdir (6)
Skrifað föstud. 13. febrúar 2009 - 18:53



Ég verð fyrir vestan núna um helgina, þar sem ég var búinn að lofa foreldrum mínum að vera á barnum á hótelinu þeirra. Kannski ágætt að komast aðeins úr bænum og fara í smá afeitrunarprocess. En hafið það gott um helgina.
Athugasemdir (9)
Skrifað föstud. 6. febrúar 2009 - 12:54



Í dag færði ég tölvupóstinn minn yfir í Google Apps. Það þýðir sem sagt að Google sjái núna um að hýsa tölvupóstinn minn. Það er algjör snilld að Google bjóði upp á það fyrir þá sem eiga sitt eigið lén...

Lesa meira
Athugasemdir (3)
Skrifað fimmtud. 5. febrúar 2009 - 00:36



Jæja, það er orðið svolítið síðan maður bloggaði síðast, en hvað um það. Ég var í Kvikmyndafélagsfræði í dag þar sem við horfðum á Full Metal Jacket, nema það að kennarinn stoppaði myndina þegar hún var hálfnuð og kom með þá skýringu að síðari innihéldi ekkert "Félagsfræðilegt". Nú þarf ég að hafa fyrir því að fara og leigja myndina til að horfa á síðari helminginn, bæði til að geta myndað mér skoðun á myndinni ásamt því að geta sagst hafa séð ALLA myndina, en ekki bara fyrri helminginn. Mannvonska.
Athugasemdir (5)
Skrifað þriðjud. 3. febrúar 2009 - 20:27



Eldri færslur!