Flokkar: Allir, Almennt, Kvikmyndir, PHP, Nörd, Tón- og leiklist

Deila á Facebook
PHP: Super globals
Skrifað af Gaui þann 23. nóvember 2005 - 17:09
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Fjöldi lestra: 1205
Ég ætla hér að fjalla smá um $_POST, $_GET, $_SESSION, $_COOKIE, $_FILES o.s.frv.

Notaðu þetta! Þetta er ekki til að ástæðulausu. Það er ekkert mál að nota þetta og þetta sparar vandræði seinna meir.

Auðvitað er einfaldara að skrifa $bla í staðin fyrir $_POST['bla'], en það er líka einfaldara að skrifa $_POST['bla'] heldur að endurskrifa allan kóðann þinn eftir að einhverjir eru búnir að misnota öryggisholu í kóðanum þínum því þú notaðir $bla í staðin fyrir $_POST['bla'].

Einnig er mjög þægilegt að nota super globals þar sem þú veist alltaf hvort breytan sé session, cookie eða post breyta eða get breyta.

Hefuru ekki lent í því að búa til 2000 línu kóða og þú setur einhverja breytu og svo veistu ekki hvort þessi breyta sé form breyta, session, kaka eða hvað, þarna er t.d. mjög þægilegt að nota super globals.

Notið super globals, gerir ykkur mikið auðveldara fyrir.

PHP.net - Predefined Variables




Athugasemdir ():