Flokkar: Allir, Almennt, Kvikmyndir, PHP, Nörd, Tón- og leiklist
Skrifað af Arnór Heiðar þann 23. nóvember 2005 - 17:52
Fjöldi lestra: 1499
Athugasemdir ( ):
PHP: Hvað er PEAR?
Skrifað af Arnór Heiðar þann 23. nóvember 2005 - 17:52
Fjöldi lestra: 1499Smá um PEAR.
Inngangur
Ástæðan, fyrir skrifum á þessari grein, er að mér finnst PEAR bæði vera ekki nógu mikið notað og ekki nógu þekkt á meðal php forritara á Íslandi.
Ég er mjög mikill fylgjandi og elskandi hlutbundinnar forritunar og hef mest verið í slíkri forritun í C++ og Delphi. Í fyrstu þegar ég fór að forrita í PHP hélt ég einfaldlega að klasar væru bara ekki til í php!! En þeir voru þarna, ég skoðaði þá og sá að þeir voru ekki mjög þróaðir og nennti því ekkert að spá í þeim af neinu viti, en svo fyrir nokkrum dögum datt mér í hug að búa til mitt eigið litla klasasafn fyrir php, og útbjó einhverja klasa sem "encapsulate"-uðu html form. Þetta gekk mjög vel og ég var kominn langt á leið þegar ég rakst á PEAR á php.net einhvernveginn.
Ég varð mjög forvitinn og fór að skoða þetta og átti í fyrstu frekar erfitt með að átt mig á því hvað þetta væri, þrátt fyrir að ég læsi skilgreininguna á því, en að svo tók ég eftir þar sem stóð: "The PHP Foundation Classes (PFC)."
Ég varð heldur betur spenntur og ég held að ég hafi, eftir þetta, lesið hverja eina og einustu blaðsíðu í manuallnum.
"Ok, en hvað er PEAR?"
PEAR er margt. Einföld skilgreining á því er að PEAR er: "PHP Extension and Application Repository".
En það er ekki nóg. PEAR er í raun samansafn af stöðluðum open-source php kóða fyrir PHP NOTENDUR til að NOTA í sínum forritum. Þe. ekki copy/paste dæmi heldur eru þetta klasar til að nota við að útbúa php forrit.
PEAR er líka kerfi til að halda utan um open-source kóða héðan og þaðan og flokka þá í pakka. Það er einnig coding-standard svo að allur pear kóði er staðlaður (meira að segja hvernig hann er commentaður og hve mörg bil eiga að vera í indenti).
Stór partur af PEAR er líka klasasafn sem heitir PFC (PHP Foundation Classes). Allir klasarnir í þessu safni eru inná php folderinu ykkar ef þið hafið nýlega útgáfu af php. Þið getið notað þá alla eins og þið viljið. PEAR er reyndar líka extension-a kóða safn, en það er ekki eins spennandi og PFC-ið.
Þessir klasar eru allir flokkaðir í flötu tré-i í pakka og geta verið á alla vegu, td. klasi til að meðhöndla skrár (sama í hvaða stýrikerfi), klasar til að birta TÖFLU, klasar til að meðhöndla user-authentication.
Þetta eru allt hlutir sem ég hef horft á svona 100 php forritara á íslandi forrita aftur og aftur (me included)! hvar er re-useability-ið?
Lokaorð
Ég vil eiginlega bara skora á alla php forritara á íslandi að venja sig á þessa coding-standards og nota þessa klasa, svo að við hökkum ekki endalaust í sama farinu. Áfram með þróunina!
http://pear.php.net

Athugasemdir (